Haukur Heiðar kominn heim í KA Tómas Þór Þórðarson skrifar 30. nóvember 2018 17:45 Komnir aftur í gult vísir/tþþ
KA-menn eru heldur betur að styrkja hópinn fyrir átökin í Pepsi-deild karla næsta sumar en fjórir leikmenn skrifuðu undir samning við félagið í dag. Stærsti bitinn var Haukur Heiðar Hauksson sem er að koma heim úr atvinnumennsku. Varnarmaðurinn hefur spilað með AIK í sænsku úrvalsdeildinni síðan 2015 en hann fór frá KA til KR árið 2012. Haukur Heiðar getur bæði spilað sem bakvörður og miðvörður en þessi 27 ára gamli leikmaður á sjö landsleiki að baki fyrir íslenska landsliðið. Hann kemur væntanlega til með að fylla í skarð Guðmanns Þórissonar í hjarta varnarinnar hjá KR. Almarr Ormarsson er einnig kominn heim í annað sinn en miðjumaðurinn öflugi kemur til KA frá Fjölni þar sem að hann spilaði á síðustu leiktíð. Almarr er uppalinn hjá KA og spilaði með liðinu til ársins 2008 þegar að frændi hans Þorvaldur Örlygsson fékk hann til Fram. Almarr kom aftur heim til KA árið 2016 og hjálpaði liðinu upp í Pepsi-deildina og að halda sæti sínu þar ári síðar áður en að hann fór aftur í bæinn og féll með Fjölni í sumar. Þriðji uppaldi KA-maðurinn sem samdi við þá gulu norðan heiða í dag er Andri Fannar Stefánsson sem hefur verið í herbúðum Vals frá árinu 2011. Andri hefur lítið spilað undanfarin tvö sumur en hann er einnig afar fær yngri flokka þjálfari. Þá samdi KA einnig við norska vinstri bakvörðurinn Alexander Groven sem kemur frá Hönefoss en þessi 26 ára gamli leikmaður hefur einni spilað fyrir Sarpsborg og Lyn en hann á leiki að baki fyrir öll yngri landslið Noregs. KA er nú alls búið að fá fimm leikmenn til liðs við sig en fyrr í mánuðinum gekk það frá samningi við Guðjón Pétur Lýðsson sem kom frá Val.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Kemur Íslendingnum unga til varnar Fótbolti „Þetta hefði getað komið fyrir mig“ Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Upphafið að endurreisn? Mögnuð endurkoma Manchester United Fótbolti Sjáðu upprisu United og öll hin mörkin úr Meistaradeildinni Fótbolti „Mikið af lygum um margt sem hefur gerst á milli mín og stjórans“ Fótbolti Áfram skorar Andri Lucas Enski boltinn Fær morðhótanir eftir andlát spænska knattspyrnumannsins Fótbolti Scholes segir Arsenal vera leiðinlegt lið Enski boltinn Uppreisn á Old Trafford: Stuðningsmenn United mótmæla Fótbolti Fleiri fréttir FH fær miðvörð aftur heim Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi Sjá meira