Fótbolti

Sjáðu upp­risu United og öll hin mörkin úr Meistara­deildinni

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Matheus Cunha fagnar öðru tveggja marka sinna á lokamínútunum í sigri Manchester United á Roma í Meistaradeildinni.
Matheus Cunha fagnar öðru tveggja marka sinna á lokamínútunum í sigri Manchester United á Roma í Meistaradeildinni. AP/Jon Super

Það vantaði að venju ekki mörkin á fjörugu Meistaradeildarkvöldi í gær og nú má sjá mörkin hér inni á Vísi.

Augu flestra voru eflaust á dramatíkinni á Old Trafford þar sem ískalt Manchester United lið lenti 2-0 undir á heimavelli en tókst að koma til baka í seinni hálfleiknum og tryggja sér sinn fyrsta sigur í öllum keppnum síðan í september.

Hér fyrir neðan má sjá þessi fimm mörk en líka mörkin frá 6-0 stórsigri Evrópumeistara Paris Saint Germain á útivelli á móti Villarreal sem og mörk Barcelona í 3-0 heimasigri á enska úrvalsdeildarliðinu Aston Villa.

Mörkin má sjá hér fyrir neðan.

Klippa: Mörk úr Meistaradeildinni 3. nóvember 2026



Fleiri fréttir

Sjá meira


×