Ingi: Fíaskóið hjá Arnari var klókt Ástrós Ýr Eggertsdóttir í Mathús Garðabæjarhöllinni skrifar 9. desember 2018 21:44 Ingi Þór tók við KR í sumar vísir/bára
Ingi Þór Steinþórsson, þjálfari karlaliðs KR í körfubolta, vissi ekki hvert hann væri kominn þegar kollegi hans á hliðarlínunni, Arnar Guðjónsson, óð inn á völlinn á meðan leik Stjörnunnar og KR stóð í Domino‘s deild karla. „Arnar setti tóninn með þessu fíaskói sínu, ég hef aldrei séð annað eins,“ sagði Ingi við Svala Björgvinsson í viðtali á Stöð 2 Sport í leikslok. „Mér fannst eins og ég væri staddur á einhverjum allt öðrum stað.“ „Þetta var klókt hjá honum og hann komst upp með þetta, það voru allir flatir hjá okkur eftir þetta.“ Atvikið átti sér stað seint í fyrsta leikhluta leiksins í Garðabænum í kvöld. Í öðrum leikhluta tók Stjarnan öll völd og kom sér í örugga forystu, leiknum lauk með 95-84 sigri Stjörnunnar. „Mér fannst varnarleikurinn galopnast og þeir voru að skjóta gríðarlega vel. Erum að gefa þeim allt of mikið og opnum okkur allt of mikið,“ sagði Ingi. „Annar leikhluti var hroðalegur bara. Hvernig menn koma gíraðir inn og hvað þeir ætla að gera, við gerum það í 1. en svo fer botninn úr þessu. Fengum lítði framlag frá bakvörðunum framan af.“ KR hefur ekki náð sér almennilega á strik í síðustu leikjum og sagði Ingi að liðið hefði farið fram úr sér eftir sigurinn á Tindastóli. En er boðlegt að lið með jafn mikla reynslu og KR láti einn sigur slá sig út af laginu í nokkrar vikur eftir á? „Það sýnir okkur bara að við erum ekki á þeim stað sem við ætlum að vera á. Vitum hvað við viljum gera en erum ekki að ná að framkvæma það. Kannski erum við ekki með réttu mennina.“ „Við þurfum að fá leikmenn til þess að stíga upp á miðjunni, okkur vantar framlag frá bakvörðunum, þetta er mikilvægasta staðan á vellinum,“ sagði Ingi. Hann sagði KR-inga þó ekki vera að hugsa um að fá til sín nýja leikmenn.
Dominos-deild karla Tengdar fréttir Þjálfari Stjörnunnar gekk trylltur inn á völlinn í miðjum leik Mjög skondið atvik í leik kvöldsins. 9. desember 2018 20:33 Arnar vildi ekki ræða atvikið ótrúlega í leikslok Arnar Guðjónsson vildi ekki ræða atvikið þegar hann strunsaði inn á völlinn í miðjum leik Stjörnunnar og KR í Domino's deild karla í kvöld. 9. desember 2018 21:20 Mest lesið Segist „hafa dáið fjórum sinnum“ og er nánast óþekkjanlegur í dag Sport Í beinni: Ísland - Noregur | Stelpurnar okkar spila upp á stoltið Fótbolti Síðasti séns á að vinna milljónir Fótbolti Valdi Ísland fram yfir Noreg: „Ég er meiri Íslendingur“ Fótbolti Hneykslast á kostnaði við kveðjuveislu Þóris og Lio Handbolti Danska þjóðin í áfalli: „Verra en okkar versta martröð“ Sport Leik lokið: Malisheva - Víkingur 0-1 | Fagleg frammistaða hjá Víkingum Fótbolti Þegar náttúran kallar í miðjum klíðum Sport Fær ekki heimsmet sitt viðurkennt: „Þetta er kjánalegt“ Sport Stefán mætir Liverpool þrátt fyrir fráfall Jota Enski boltinn Fleiri fréttir Birkir Hrafn í NBA akademíunni „Þetta gerist rosa hratt“ Sengun í fantaformi í sumarfríinu Hægt að gista í glæsihúsi Michael Jordan Shai Gilgeous-Alexander og Angel Reese framan á 2K26 Sengun í fantaformi í sumarfríinu Jokic framlengir ekki að sinni Verður fimmti launahæsti íþróttamaður í heimi Fylkir og Valur í formlegt samstarf Mikil blóðtaka fyrir Valsmenn Sjö lið skiptust á sex leikmönnum Tyrese Haliburton missir af öllu næsta tímabili KR semur við ungan bandarískan framherja Hægt að skoða EuroBasket bikarinn og fá áritun hjá strákunum Þórsarar semja við Grikkja og Bandarikjamann Rauða pandan í NBA útskrifuð af sjúkrahúsi Helgi Magg hættir í Körfuboltakvöldi og semur við Grindavík Fær 2,7 milljarða á ári næstu fimm ár fyrir að spila ekki með liðinu Skórnir hennar seldust upp á mínútu Mike Brown sagður vera að taka við New York Knicks Sænsk landsliðskona til Grindavíkur Belgar vörðu Evrópumeistaratitilinn James tekur einn dans enn í það minnsta Körfuboltaspjald með Jordan seldist á 243 milljónir króna Einhenta undrið ekki í NBA Penninn á lofti í Keflavík Stólarnir búnir að semja við „DNA-ið í félaginu“ Tönnin slegin úr henni og var svo bannað að koma aftur inn á völlinn Fotios spilar 42 ára með Fjölni Cooper Flagg gerir sér grein fyrir pressunni sem verður á honum Sjá meira
Þjálfari Stjörnunnar gekk trylltur inn á völlinn í miðjum leik Mjög skondið atvik í leik kvöldsins. 9. desember 2018 20:33
Arnar vildi ekki ræða atvikið ótrúlega í leikslok Arnar Guðjónsson vildi ekki ræða atvikið þegar hann strunsaði inn á völlinn í miðjum leik Stjörnunnar og KR í Domino's deild karla í kvöld. 9. desember 2018 21:20