Hviður upp undir 50 metra á sekúndu Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 17. desember 2018 06:56 Það verður ansi hvasst sunnanlands síðdegis í dag og kvöld eins og þessi vindaspá ber með sér. veðurstofa íslands
Það hvessir hressilega í dag og undir kvöld verður kominn austan stormur eða rok allra syðst á landinu. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að á þeim slóðum gætu hviður náð upp undir 50 metra á sekúndu en gul viðvörun tekur gildi á Suðurlandi klukkan 17 í dag. Eru ökumenn því beðnir um að fara varlega. „Annars staðar verður þetta meira 15-23 og hviður að 35-40 m/s sem er eitthvað sem flestir eru orðnir allvanir eftir lægðir undangenginna vikna,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings um væntanlegan storm. Þá er spáð talsverðri rigningu á Suðausturlandi af Austfjörðum. Á morgun dregur úr úrkomu nema að það mun rigna austan til fram á kvöld. „Síðan er útlit fyrir nokkra fremur hæga og úrkomulitla daga en þegar vind lægir á þessum árstíma styttist hratt í að hitastigið falli undir frostmark og því gætu hálkublettir myndast,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings.Veðurhorfur á landinu:Hvessir í dag, austan 15-23 m/s með rigningu seinnipartinn, en 23-28 um tíma syðst. Talsverð rigning SA-lands og á Austfjörðum og dregur úr vindi seint um kvöldið. Hiti 1 til 9 stig, mildast syðst.Lægir mikið í nótt, austlæg átt, 5-13 á morgun. Skúrir sunnan til, rigning um landið A-vert fram á kvöld, en annars úrkomulítið. Hiti 2 til 7 stig, mildast sunnan- og SA-lands.Á þriðjudag:Austlæg átt, 3-10 m/s og víða þurrt, en 10-15 og talsverð væta A-ast. Hægari og úrkomuminna A-til seint um kvöldið. Hiti 0 til 6 stig, mildast syðst.Á miðvikudag:Austlæg átt, 3-10 m/s, hvassast syðst. Rigning SA-til en annars þurrt að kalla. Hiti breytist lítið.Á fimmtudag:Hæg austlæg eða breytileg átt, skýjað með köflum og stöku él A-til. Allvíða frostlaust við sjávarsíðuna, en annars 1 til 8 stiga frost.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Innlent Fleiri fréttir Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sjá meira