Þegar aðeins ein leið er fær Þorvaldur Gylfason skrifar 13. desember 2018 08:00 Reykjavík – Oftast eru tvær eða fleiri leiðir færar að settu marki. Sú staða getur þó komið upp að aðeins ein leið sé fær. Alþingi hefur komið sér í þá stöðu.Þjóðin ein getur veitt Alþingi uppreist æruÞráinn Bertelsson fv. alþingismaður orðar þessa hugsun vel. Hann segir: „Ruddamennska og spilling á Alþingi birtist ekki bara með heimskulegu og ógeðslegu rausi yfir glösum heldur fyrst og fremst með því að sýna þjóðinni fyrirlitningu með því að setja sig ofar almenningi og viðurkenna ekki af hverjum Alþingi þiggur vald sitt. Nú væri ráð fyrir Alþingi til að endurheimta lágmarksvirðingu og traust hjá þjóðinni með því að sleppa tafarlaust úr gíslingu þeirri stjórnarskrá sem þjóðin lét semja og setja hana óbrenglaða í lögformlegt ferli og stuðla án undanbragða að samþykkt hennar sem allra fyrst. Þetta væri til marks um að ruddamennskan hafi ekki náð traustum og varanlegum meirihluta á þinginu og ennfremur til marks um fúsleika til að þjóna þjóðinni og láta að vilja hennar.Þjóðin ein getur veitt Alþingi uppreisn æru. „Þing sem setur sig ofar þjóðinni og býr sig undir að sitja í skjóli vopnaðrar lögreglu á þjóðin að senda heim með skófar á afturendanum – án þess að tefja sig á því að setja málið í nefnd.“ Hörður Torfason söngvaskáld tekur í sama streng. Hann segir: „Eina færa leið Alþingis til að öðlast virðingu er að hlýða kalli fólksins og setja nýja stjórnarskrá.“Þúsundir kvenna hafa lýst sig sama sinnis með heilsíðuauglýsingum í blöðum.Djúpstæður vandi Alþingis Alþingi á við djúpstæðan vanda að stríða sem margir menn, innan húss og utan, hafa lýst á prenti. Vandinn kristallast í fernum mistökum sem hafa smám saman grafið undan trausti og virðingu þingsins. Fyrsta villan var hermangið sem dró óprúttinn fjárglæfralýð að stjórnmálaflokkunum, einkum Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki, og dró dilk á eftir sér. Næsta villa var ókeypis afhending verðmætra aflaheimilda í hendur útvegsmanna sem urðu að uppivöðslusamri auðstétt og hafa m.a. lagt undir sig Morgunblaðið og magnað spillingaráhrif hermangsins. Þriðja villan var ósvífin útfærsla einkavæðingar gömlu bankanna í hendur vildarvina fyrrnefndra flokka með hörmulegum afleiðingum sem allir þekkja. Margir bankamenn fengu dóma, en ýmsir höfuðpaurar sluppu í boði Alþingis sem vanrækti að rannsaka einkavæðingu bankanna og leyfði meintum brotum að fyrnast þrátt fyrir ítrekaðar áskoranir um að girða fyrir fyrningar. Alþingi hefði þurft að lengja fyrningarfrest hruntengdra brota en þingið kaus að gera það ekki. Hér er við alla þingflokka að sakast, ekki bara gömlu helmingaskiptaflokkana. Önnur yfirvöld, þ.m.t. lögregla og embætti saksóknara, sinntu ekki heldur áskorunum um að hefja rannsókn til að girða fyrir fyrningar og kunna að hafa bakað sér refsiábyrgð með vanrækslu sinni. Tíminn mun skera úr því. Fjórðu villuna leiðir af fyrri villunum þrem. Þegar Alþingi stóð uppi ærulaust eftir hrun átti það einn sterkan leik í stöðunni: að bjóða þjóðinni að setja sér nýja stjórnarskrá á eigin spýtur án afskipta þingsins. Alþingi fór þessa leið, einu færu leiðina. Allt gekk eins og í sögu, ný stjórnarskrá varð til fyrir tilverknað fólksins í landinu. Hún hefur fengið afbragðsgóðar viðtökur innan lands og utan og hlaut samþykki 2/3 hluta kjósenda í þjóðaratkvæðagreiðslu sem Alþingi bauð til 2012. Þá var ekkert eftir annað en að Alþingi staðfesti nýju stjórnarskrána fyrir og eftir kosningarnar 2013. Það gerði Alþingi þó ekki. Það er mesta hneisa sem Alþingi hefur kallað yfir sjálft sig og okkur öll. Síðan bætti þingið gráu ofan á svart. Hvers vegna fór Alþingi svo illa að ráði sínu? Það er þekkt fyrirbæri að brotamenn færa sig upp á skaftið með því að treysta sér smám saman til alvarlegri brota ef þeim er ekki settur stóllinn fyrir dyrnar. Hermangið, kvótakerfið og spillt einkavinavæðing bankanna sljóvguðu svo siðvitund stjórnmálastéttarinnar að Ísland telst nú ekki lengur óskorað lýðræðisríki. Sú staðreynd kallar á sterk viðbrögð án frekari tafar.Alþingi þarf endurnýjað umboð Vandi Alþingis nú er ekki bundinn við einstök atvik og meint lögbrot tengd þeim. Kjarni vandans er að Alþingi hefur ekki tekizt að endurheimta traust fólksins í landinu frá hruni þar eð þingmenn taka eigin hagsmuni og aðra sérhagsmuni fram yfir almannahag. Fv. forsætisráðherra sem 86% kjósenda telja að eigi að segja af sér þingmennsku finnst eðlilegt að hann sitji áfram alveg eins og honum finnst eðlilegt að stjórnarskrá sem 67% kjósenda samþykktu 2012 nái ekki fram að ganga á Alþingi. Út úr þessum vanda er aðeins ein leið fær. Forsætisráðherra þarf að biðja forseta Íslands að rjúfa þing og boða til nýrra kosninga. Fyrir þingrof þarf hún að mynda meirihluta á þinginu um staðfestingu nýju stjórnarskrárinnar sem hefur legið fyrir fullbúin frá 2013 og heita því að mynda meirihluta um endurstaðfestingu eftir kosningar. Að því loknu verða alþingiskosningar loksins aftur lögmætar í samræmi við ákvæði nýju stjórnarskrárinnar um jafnt vægi atkvæða. Þá loksins getur Alþingi gert sér von um að ávinna sér aftur traust og virðingu. Annars er voðinn vís. Viltu birta grein á Vísi? Sendu okkur póst. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Þorvaldur Gylfason Mest lesið Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson Skoðun Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson Skoðun Skoðun Skoðun Sjónarspil í Istanbul Gunnar Pálsson skrifar Skoðun Að vilja meira og meira, meira í dag en í gær Harpa Fönn Sigurjónsdóttir skrifar Skoðun Sjálfboðaliðinn er hornsteinninn Hannes S. Jónsson skrifar Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson skrifar Skoðun Gangast við mistökum Júlíus Birgir Jóhannsson skrifar Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar Skoðun Ríkisstjórnin ræðst gegn ferðaþjónustu bænda Lilja Rannveig Sigurgeirsdóttir skrifar Skoðun Að apa eða skapa Rósa Dögg Ægisdóttir skrifar Skoðun Að reyna að „tímasetja“ markaðinn - er það góð strategía? Baldvin Ingi Sigurðsson skrifar Skoðun Lífsnauðsynlegt aðgengi Bryndís Haraldsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna var Úlfar rekinn? Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt skrifar Skoðun Þegar við ætluðum að hitta Farage - Á Ísland að ganga í ESB? Sveinn Ólafsson skrifar Skoðun Sama steypan Ingólfur Sverrisson skrifar Skoðun Ofbeldi gagnvart eldra fólki Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir skrifar Skoðun Að taka ekki mark á sjálfum sér Kristinn Karl Brynjarsson skrifar Skoðun Betri borg Alexandra Briem skrifar Skoðun Að eiga sæti við borðið Grímur Grímsson skrifar Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar Skoðun Íþróttir eru lykilinn Willum Þór Þórsson skrifar Skoðun Framtíð safna í ferðaþjónustu Guðrún D. Whitehead skrifar Skoðun Munu Ísraelsmenn sprengja bifreið páfa í loft upp? Einar Baldvin Árnason skrifar Skoðun Að skapa framtíð úr fortíð Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar Skoðun Tími til umbóta í byggingareftirliti Sigurður Ingi Jóhannsson skrifar Skoðun Stærð er ekki mæld í sentimetrum Sigmar Guðmundsson skrifar Skoðun Áður en íslenskan leysist upp Gamithra Marga skrifar Skoðun Lögfræðingurinn sem gleymdi tilgangi laga Sigríður Svanborgardóttir skrifar Skoðun Þétting byggðar – nokkur mistök gjaldfella ekki stefnuna Samúel Torfi Pétursson skrifar Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar Skoðun Hverjum þjónar nýsköpunin? Halldóra Mogensen skrifar Sjá meira
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun
Skoðun Kallað eftir málefnalegri umræðu um kröfur um íslenskukunnáttu Eiríkur Rögnvaldsson skrifar
Skoðun Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir skrifar
Skoðun Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt skrifar
Skoðun Hagnaðurinn sem við afsölum okkur: Af hverju salan á Íslandsbanka er samfélagslegt glapræði Karl Héðinn Kristjánsson skrifar
Skoðun Breyta lífum til hins betra eða dvelja áfram í hýðum síns vetra? Tómas Ellert Tómasson skrifar
Um styttingu vinnuvikunnar í leikskólum Reykjavíkurborgar, ákall um leiðréttingu Anna Margrét Ólafsdóttir,Hafdís Svansdóttir,Jónína Einarsdóttir Skoðun
Eru forsætisráðherra og ríkisstjórn hrædd við vilja fólksins; lýðræðið? Ole Anton Bieltvedt Skoðun