Handbolti

Íslendingalið Elverum norskur bikarmeistari

Arnar Geir Halldórsson skrifar
Sigvaldi Björn Guðjónsson
Sigvaldi Björn Guðjónsson Vísir/Daníel
Íslensku handboltamennirnir Sigvaldi Björn Guðjónsson og Þráinn Orri Jónsson eru norskir bikarmeistarar í handbolta eftir að hafa hjálpað liði sínu, Elverum, að vinna átta marka sigur á Halden í úrslitaleik norska bikarsins í gær að viðstöddum tæplega 6500 áhorfendum.

Leiknum lauk með 30-22 sigri Elverum þar sem Þráinn Orri skoraði fjögur mörk en Sigvaldi Björn tvö.

Elverum er í þriðja sæti norsku deildarinnar sem nú farin í vetrarfrí líkt og aðrar deildir vegna HM í janúar. Elverum tveimur stigum á eftir toppliði Arendal en á leik til góða.

Sigvaldi er hluti af íslenska landsliðshópnum sem er að undirbúa sig fyrir heimsmeistaramótið í Danmörku og Þýskalandi í janúar.

 




Fleiri fréttir

Sjá meira


×