Stormur og snjókoma í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 15. janúar 2019 07:34 Vetur konungur er ríkjandi í veðrinu þessa dagana. vísir/vilhelm
Það er útlit fyrir hvassa norðaustan átt á norðanverðu landinu í dag með snjókomu og gæti jafnvel orðið stormur á Vestfjörðum fram yfir hádegi að því er fram kemur í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Þar segir að það verði svo mun hægari vindur og él sunnan lands en hiti verður í kringum frostmark. „Í kvöld snýst í norðanátt og styrkur hennar jafnast yfir landið, víða verður strekkingur. Þá má búast við éljum á norðanverðu landinu, en það léttir til syðra. Það kólnar með norðanáttinni og í kvöld er útlit fyrir frost á bilinu 2 til 7 stig. Það dregur síðan úr vindi og éljum þegar líður á morgundaginn og herðir á frosti,“ segir á vef Veðurstofunnar.Veðurhorfur á landinu:Austan og norðaustan 13-23 m/s og snjókoma, hvassast á Vestfjörðum. Mun hægari vindur á sunnanverðu landinu og él. Hiti kringum frostmark. Norðan 10-15 í kvöld. Él norðanlands, en léttir til syðra. Frost 2 til 7 stig. Dregur úr vindi og éljum þegar líður á morgundaginn og herðir á frosti.Á miðvikudag:Norðan 5-10 m/s, en 10-15 austast á landinu. Dálítil él á Norður- og Austurlandi, en léttskýjað sunnan heiða. Frost 2 til 7 stig. Hæg breytileg átt um kvöldið og herðir á frosti.Á fimmtudag:Austan 5-10 m/s á sunnanverðu landinu, snjókoma með köflum og vægt frost, en slydda við ströndina og hiti um frostmark. Hægari vindur norðantil, stöku él og talsvert frost.Á föstudag:Austan og suðaustan 5-13. Rigning, slydda eða snjókoma um tíma sunnan- og vestanlands, hiti kringum frostmark. Hægari vindur norðaustantil, léttskýjað og frost 3 til 8 stig.
Veður Mest lesið Öryggismyndavélar í svefnherberginu og fyrsta útgáfa af Lolitu á skrifstofunni Erlent Dánarorsök Ozzy Osbourne ljós Erlent Hættir að fjármagna þróun mRNA bóluefna Erlent Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Innlent Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Innlent Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Innlent Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Innlent Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Innlent Blóðbankinn á leið í Kringluna Innlent Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Innlent Fleiri fréttir Sektaður vegna kýr sem drapst á leið í sláturhús Minnsti þéttleiki makríls síðan 2010 Tveir skjálftar yfir þrír að stærð Hvar á að grípa niður í fækkun innflytjenda? Blóðbankinn á leið í Kringluna Nokkuð um hávaðaútköll Segja upp og draga úr útgáfu: Óvissan í rekstrinum „því miður aukist mikið“ Lax ofan Stuðlagils gæti hafa veiðst lengst frá sjó á Íslandi Til skoðunar að hafa mannskap við vöktun í Reynisfjöru Herða öryggisreglur eftir slysið: „Þetta hafa verið mjög erfiðir dagar“ Flugeldum kastað að fólki á Akureyri Handtekin fyrir ölvunarakstur eftir grænt ljós frá löggunni Ráðstafanir í Reynisfjöru, tollar og lax á sjaldséðum slóðum Boðar fund um tolla Trumps og ESB Rauða ljósið mun blikka fyrr Enn má búast við gosmóðu þó eldgosinu sé lokið í bili Flutti lítra af kókaínvökva til landsins gegn greiðslu „Samstaða skapar samfélag“ er þema Hinsegin daga Strangari reglur og ný gjaldskrá til að „tempra kraftmikla fólksfjölgun“ Neyddur til að taka ketamín og sjónvarpi kastað í höfuð hans Tollar Trumps muni hafa tilætluð áhrif Sendir „dylgjur“ Haralds aftur til föðurhúsanna Allt bendir til þess að eldgosinu sé lokið Vörubifreið ekið á vegfarandann Útlendingamálin, Reynisfjara og Hinsegin dagar Ferðamenn gangi á eigin ábyrgð til leiks við náttúru Íslands Ekið á gangandi vegfaranda við Kaplakrika Boðar „norsku leiðina“ í útlendingamálum Mjög lítil virkni en mallar enn Reyndist ekki borgunarmaður fyrir vikudvölinni Sjá meira