Þakklát fyrir að hafa ratað úr sófanum Björk Eiðsdóttir skrifar 8. febrúar 2019 07:00 Kolla segir eina fjallgöngu jafnast á við nokkra sálfræðitíma. Hér er hún á leið?upp í grunnbúðir Everest og á bak við hana má sjá glitta í sjálfan Everest-tind.
Kolbrún Björnsdóttir sagði skilið við fjölmiðla árið 2014 og fór að starfa í hjólaversluninni Kríu. „Sumum brá mjög á meðan öðrum fannst það frábært. Ég hafði byrjað að hjóla nokkrum mánuðum áður og féll gjörsamlega fyrir sportinu, enda fyrsta hreyfingin sem mér þótti í alvörunni skemmtileg. Ég var svo sem búin að freista þess að hætta í fjölmiðlum áður eins og margir aðrir. Fjölmiðlastarf getur verið mjög skemmtilegt en það getur líka verið þreytandi, eins og öll önnur störf. Ætli það hafi ekki bara verið kominn tími á breytingar. Það kom þó ekki til af góðu að ég hætti í Kríu. Ég lenti í leiðinda hjólaslysi sem gerði mig óvinnufæra í nokkuð langan tíma og ég sá fram á að ég yrði að færa mig á önnur mið.“ Kolla, eins og hún er oftast kölluð, lagði hjólið tilneydd á hilluna og ákvað að leggja meiri áherslu á fjallgöngur.Kolla ásamt vinkonum sínum Friðriku Hjördísi og Erlu Sylvíu á leið á Esjuna.„Þegar maður gengur á fjöll og nýtur þess að vera úti í náttúrunni þá er gaman að vita aðeins meira um landið. Ég skráði mig því í leiðsögunám hjá Endurmenntun HÍ og kláraði það nám árið 2017 og er nú leiðsögumaður í hjáverkum hjá Vilborgu Örnu í Tindum Travel. Það er skemmtilegt og gefandi að fylgja fólki á fjöll, bæði hér heima og í Nepal og ég held því vonandi áfram.“ Botninn að fá harðsperrur við að hnoða deig Kolla hefur þó ekki alltaf verið hlaupandi og hjólandi um fjöll og firnindi og hefði verið flokkuð sem kyrrsetumanneskja fyrir nokkrum árum. Útivistina segir hún hafa breytt öllu í lífi sínu. „Útivistin gefur mér mjög mikið andlega, ég segi til dæmis oft að góð fjallganga jafnist á við tvo til þrjá sálfræðitíma. Og ég hef aldrei verið hraustari líkamlega. Ég er týpan sem fékk eitt sinn grínlaust harðsperrur af því að hnoða deig. Það var ákveðinn botn í lífi mínu,“ segir hún og hlær. „En í alvöru, ég get ekki lýst því hversu þakklát ég er fyrir að hafa ratað úr sófanum.“ Kolla segir útivistina ganga fyrir og hún sé þakklát manninum sínum fyrir þolinmæðina þegar hún stingur af á kvöldin og um helgar.Kolla, Nima og Dendi á leið í Annapurna Base Camp í Nepal.„Ég giska á að það gleðji hann að sjá mig svona glaða og hann kvarti því ekkert yfir fjarvistum mínum. Annars er ég mikið heima við og vinn þaðan. Vinkonusamböndin næ ég mest að rækta í útivistinni þar sem þær eru flestar líka haldnar sömu bakteríu og ég. Það einfaldar helling.“ Eins og fyrr segir tók Kolla á dögunum við sem framkvæmdastjóri Lífs, styrktarfélags kvennadeildar Landspítalans. „Ég þurfti varla að hugsa mig um þegar mér bauðst að starfa með þeim. Þetta er fallegt félag sem sinnir mikilvægum verkefnum og rímar mjög við það sem ég stend fyrir í lífinu. Ég lít á það sem heiður að vera treyst fyrir þessu verkefni. Líf skiptir miklu máli og ég vona svo sannarlega að ég fái enn fleiri með okkur í lið til að efla félagið og þar með kvennadeildina. Líf fagnar tíu ára afmæli á árinu og því er tilvalið að nýta það til að gera okkur enn breiðari, láta aðeins meira fyrir okkur fara og fá fleiri landsmenn til að styðja við bakið á okkur og kvennadeildinni. Ég sé því fyrir mér að Lífsfélögum fjölgi á afmælisárinu og það væri gaman að hleypa landsmönnum örlítið inn fyrir dyr deildarinnar með ýmsum fróðleik sem fæst okkar eru að velta fyrir sér dags daglega. Umfram allt þá ætlum við að gera þetta ár eins skemmtilegt og við getum og vonandi fá sem flesta með okkur. Má ég nota síðustu mínútuna til að óska eftir hlaupurum til að hlaupa fyrir Líf í Reykjavíkurmaraþoninu?“ laumar hún inn að lokum.
Birtist í Fréttablaðinu Everest Heilsa Mest lesið Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Lífið Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Lífið Ísrael sendir kvörtun til EBU Lífið Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Lífið Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Lífið „Og ég varð snargeðveikur“ Lífið „Ég þurfti að breyta hugsun, hegðun og tali“ Áskorun „Ég varð stjörf af hræðslu“ Lífið Halla á hátíðarsýningu Attenborough Lífið Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Lífið Fleiri fréttir Pussy Riot og Páll Óskar troða upp til stuðnings flóttafólki Skrýtið að sjá mannfjöldann syngja með á íslensku Halla á hátíðarsýningu Attenborough Norðurljósin séu svalasta undur veraldar Arnar og Sara gáfu syninum nafn Atriðin sem Ísland vill ekki fá áfram Í kossaflensi á Beyoncé Ísrael sendir kvörtun til EBU Aðal gellur landsins saman í epískri hestaferð Stjörnulífið: Seiðandi ofurskvísur og mæðradagurinn Elskar fallega hælaskó og Prettyboitjokkó Fréttamaður í næstlélegasta flokknum en Væb stórstjörnur Næsta lag fjalli um hið íslenska gufubað „Ég varð stjörf af hræðslu“ Krakkatían: Reikistjörnur, regnbogar og kengúrur „Og ég varð snargeðveikur“ Fjölmenni á sjötíu ára afmæli Kópavogs Nýtt íslenskt hundaleikfang slær í gegn Bók skilað eftir 56 ára útlán Hugmyndir fyrir mæðradaginn Bakaríið í beinni útsendingu Fréttatía vikunnar: Páfakjör, poppstjarna og nýr kanslari „Þetta eru þýðingarmestu skilaboð Davids Attenborough til þessa“ Hönnunarunnendur skáluðu í Kópavogi Molly-Mae og Tommy Fury saman á ný Drengurinn Fengurinn hlaut styrk úr Minningarsjóði Svavars Péturs Leikstjórinn James Foley er látinn Frumsýning hjá Auðuni: Langaði til að gera fallegt náttúruklám Kristín Péturs orðin tveggja drengja móðir Katrín Tanja og Brooks tilkynna kynið Sjá meira