Toppliðið missir einn sinn besta leikmann Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. febrúar 2019 15:15 Unnur Tara Jónsdóttir hefur átt mjög flott tímabil. Hér reynir hún að stoppa Stjörnukonuna Ragnheiði Benónísdóttur. Vísir/Daníel
Nýliðar KR í Domino´s deild kvenna í körfubolta hafa orðið fyrir miklu áfalli en landsliðskonan Unnur Tara Jónsdóttir spilar ekki meira með Vesturbæjarliðinu á þessari leiktíð. Karfan.is segir frá því að um 2/3 hluta fremra krossbands hennar hafi trosnað í leik á móti Breiðabliki á dögunum. Þessi meiðsli þýða að hún verður ekkert meira með í vetur en þjálfarinn Benedikt Guðmundsson staðfesti þetta við síðuna. Unnur Tara Jónsdóttir er að spila aftur í efstu deild eftir langa fjarveru en hún hjálpaði KR að komast upp í efstu deild í fyrra í vetur. Á þessu tímabili hefur Unnur Tara verið með 8,7 stig og 6,4 fráköst að meðaltali en auk þess að vera besti íslenski leikmaður KR-liðsins þá hefur hún verið einn allra besti varnarmaður Domino´s deildarinnar. Unnur Tara skoraði 19 stig á 22 mínútum í þessum afdrifaríka leik á móti Blikum en hann fór fram 6. febrúar síðastliðinn. KR lék án Unnar á móti Skallagrími í leiknum á eftir og vann þá 80-64 sigur. Liðið hélt því toppsæti sínu í deildinni en KR-konur eru í harðri baráttu við Keflavík og Val um deildarmeistaratitilinn. Þetta er líka missir fyrir landsliðið en Unnur Tara var búin að vinna sér sæti í landsliðinu í vetur eftir átta ára fjarveru.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira