Fyrsti bikarleikur Helenu í Höllinni í tólf ár Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. febrúar 2019 16:30 Helena Sverrisdóttir hampar bikarmeistaratitlinum eftir síðasta bikarleik sinn í Laugardalshöllinni. Með henni er Pálína Gunnlaugsdóttir. Vísir/Vilhelm
Helena Sverrisdóttir verður með Valsliðinu í Laugardalshöllinni í kvöld en þar er meira en áratugur síðan hún var síðast í þessari stöðu. Íslenski landsliðsfyrirliðinn Helena Sverrisdóttir verður í sviðsljósinu í kvöld þegar Valskonur mæta Snæfelli í undanúrslitum Geysisbikars kvenna. Þetta er líka langþráður leikur fyrir Helenu sem hefur ekki spilað bikarleik í Laugardalshöllinni síðan 17. febrúar árið 2007. Helena hjálpaði þá Haukum að verða bikarmeistari eftir 78-77 sigur á Keflavík í úrslitaleik en hún var með 23 stig, 14 fráköst og 4 stoðsendingar í úrslitaleiknum fyrir tólf árum. Helena varð einnig bikarmeistari árið 2005 en hún var þá með 22 stig, 11 stoðsendingar og 9 fráköst í 72-69 sigri Hauka á Grindavík í úrslitaleiknum. Helena fór út í skóla í Bandaríkjunum eftir 2006-07 tímabilið og svo í atvinnumennsku í framhaldi af því. Helena er nú á sínu fjórða tímabili eftir að hún kom aftur heim en nú fyrst tókst henni að komast í undanúrslit bikarsins. Hún missti af bikarnum eitt tímabilið þar sem hún var í barnsburðarleyfi en datt út með Haukum í átta liða úrslitum 2015-16 og svo út í sextán liða úrslitum með Haukum í fyrravetur. Þegar Helena gengur út á fjalir Laugardalshallarinnar í kvöld þá verða liðnir 4106 dagar síðan hún spilaði síðasta bikarleik í húsinu. Á þessum 4106 dögum hefur hún aftur á móti spilað átta landsleiki í Laugardalshöllinni og skorað í þeim 153 stig eða 19,1 stig að meðaltali í leik. Leikur Vals og Snæfells hefst klukkan 20.15 en klukkan 17.30 spila Breiðablik og Stjarnan. Liðin sem vinna þessa leiki mætast svo í bikarúrslitaleiknum á laugardaginn.
Dominos-deild kvenna Mest lesið „Hún er gjörsamlega niðurbrotin“ Sport „Við erum félagar, við Messi“ Fótbolti Ronaldo fór illa með færin í kvöld Fótbolti Nýi Barcelona-maðurinn í góðum gír í sigri Englendinga Fótbolti LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Körfubolti Átta rauð spjöld í sama leiknum Fótbolti HM í fótbolta: Sameiningaraflið sem sundrar Fótbolti Töframaðurinn Messi eða bara mistök hjá Íslandi? Sport Birkir Már með tvö og Afturelding í undanúrslit í fyrsta skipti Fótbolti McKenna hættir óvænt sem stjóri Ipswich Enski boltinn Fleiri fréttir LeBron James um „Geitina“ í NBA: Enginn betri en ég Wembanyama sleppur við refsingu Kolbrún snýr aftur heim og semur við Tindastól Steinar áfram hjá Ármanni Hamar og Þór hætta samstarfi Martin í úrvalsliðinu Martin spilar til úrslita um þýska meistaratitilinn Elvar og félagar lentu í gininu á Börsungum í kvöld „Ég hef alltaf komið sterkari til baka“ „Ég fer í góðu og þeir skilja mína ákvörðun“ KR blæs í herlúðra: Sara Rún og Emma Sóldís í Vesturbæinn Baulað á Trump í New York Spurs minnka muninn í úrslitaeinvíginu Þrefaldur NBA-meistari með Jordan látinn Ekkert teiti því Trump mætir á völlinn Martin á leið í oddaleik Elvar og félagar hentu meisturum Real Madrid úr leik Tryggvi úr leik þrátt fyrir góða frammistöðu Bræðurnir áfram og meistararnir halda þéttum kjarna Dæmdur í lífstíðarbann frá öllum NBA leikjum Stórveldið svaraði fyrir sig á Tenerife Lokuðu á Martin og héldu sér á lífi Eftirspurnin sprengir skalann: Ódýrasti miðinn kostar hátt í milljón Kane laus úr fangelsi og kemur til Íslands í haust „Ég var lélegur í kvöld, þetta er ekki flóknara en það“ Ein karfa skildi liðin að Þór Þorlákshöfn sækja sér leikmann Bjóða upp á áfanga í körfuboltadómgæslu á Króknum næsta vetur Sjáðu sigurkörfuna í óvæntum sigri Elvars og félaga á Real Madrid Elvar og félagar komnir yfir á móti deildarmeisturunum Sjá meira