Gefandi þrátt fyrir mikið álag Brynhildur Björnsdóttir skrifar 11. febrúar 2019 11:00 Elva B. Björnsdóttir aðalvarðstjóri og varðstofustjóri 112 og Kamilla Guðmundsdóttir aðstoðarvarðstjóri og í fræðsluteymi 112. Fréttablaðið/Stefán
Beiðnirnar sem okkur berast eru jafn misjafnar og þær eru margar og innhringjendurnir eru að sama skapi ólíkir og úr öllum stéttum samfélagsins,“ segir Kamilla. „Á síðasta ári komu yfir 200.000 símtöl inn til okkar og það þarf engan sérfræðing í tölfræði til þess að sjá að varðstofa Neyðarlínu, sem er mönnuð með 2-4 neyðarvörðum á hverjum tíma, er yfirleitt undir miklu álagi.“ Elva tekur undir þetta. „Hjá okkur gerast hlutirnir hratt og öll tilfelli sem verða að boðun til viðbragðsaðila byrja hjá okkur.“ Hún bætir við að það geti reynst vandasamt að ná haldbærum upplýsingum frá þeim sem hringja af vettvangi. „Við þurfum að reiða okkur á upplýsingar frá fólki sem er í mjög miklu áfalli, talar hvorki ensku né íslensku, er undir miklum áhrifum vímuefna eða er mjög ósamvinnuþýtt. En þrátt fyrir allt er þetta virkilega gefandi og spennandi starf.“550 símtöl á dag Á Neyðarlínu starfa í heildina 19 neyðarverðir. „Á venjulegum degi berast okkur um það bil 550 símtöl í Neyðarnúmerið 112 og verkefnin eru afar fjölbreytt. Meginhlutverk okkar er að finna nákvæma staðsetningu, greina eðli og umfang þess sem tilkynnt er um, boða í kjölfarið viðeigandi viðbragð á staðinn og veita leiðbeiningar og aðstoð í gegnum síma eins og unnt er. Í alvarlegum málum er viðmiðið að boðun sé komin á sjúkrabíl innan 90 sekúndna frá upphafi símtals og því reynir á að vera fljótur að hugsa, búa yfir góðri þekkingu á landinu og ná að stýra samtalinu þannig að góðar og réttar upplýsingar náist sem fyrst,“ segir Kamilla. Elva segir afskaplega persónubundið hvaða símtöl taka mest á. „En heilt yfir eru alvarleg slys eða dauðsföll þegar börn eiga í hlut alltaf mjög erfið, eins þegar fólk kemur að aðstandanda sem hefur framið sjálfsvíg og svo eru alvarleg slys utan alfaraleiðar krefjandi enda yfirleitt langt í næsta viðbragðsaðila og oft lítið hægt að gera annað en að bíða á línunni og reyna að hughreysta innhringjanda. Í slíkum tilfellum reynum við jafnvel að virkja einhverja sem eru búsettir á svæðinu til þess að fara á vettvang og aðstoða áður en fagaðilar koma á staðinn.“ Þær segja einnig báðar að barnaverndarmálin geti líka verið erfið en utan almenns opnunartíma barnaverndarnefnda landsins þá tekur 112 við tilkynningum og erindum er varða barnavernd.Hættur á heimili Þær vilja báðar minna fólk á að gæta öryggis, ekki síst inni á heimilinu. „Ótrúlegustu hlutir og aðstæður geta skapað slysahættu inni á heimilum og í daglegu lífi fólks,“ segir Elva og Kamilla bætir við: „Það sem stendur upp úr og eitthvað sem ég hef breytt hjá mér persónulega er til dæmis að hafa þannig læsingu á baðherbergishurð að hægt sé að opna utan frá með lykli, vera með grunnöryggisbúnað í bílnum á borð við sjúkrakassa, gluggahamar með beltisskera og kerti til þess að halda varma í bílnum ef fólk er lengi fast í slæmu veðri.“ Þá vilja þær minna fólk á að spenna ferðatöskur og stærri hluti í belti séu þeir geymdir í aftursæti bíls en lausir hlutir geta skapað gríðarlega slysahættu og valdið miklum áverkum, og enn fremur að leyfa börnum ekki að vera með fartölvur, spjaldtölvur eða annan harðan afþreyingarbúnað í bílferðum nema tækið sé fest aftan við framsætin og geti því ekki valdið skaða ef bíllinn lendir í óhappi sem veldur því að höfuð barnsins rykkist fram. „Þegar fólk er á ferðinni er líka ágætt að vera meðvitaður um eigin staðsetningu en það er mjög algengt að fólk hafi ekki hugmynd um hvar það er statt þegar slys ber að höndum og lýsingar á borð við „einhvers staðar á milli Reykjavíkur og Akureyrar“ segja okkur lítið,“ segir Elva. „Svo eru það auðvitað reykskynjarar í hverju herbergi, eiga slökkvitæki og kenna öllum á heimilinu að nota það, veggfesta stærri húsgögn og nota alltaf tilskilinn öryggisbúnað við framkvæmdir eða tómstundaiðkun.“Skyndihjálpin mikilvæg Kamillu er einnig umhugað um skyndihjálparþekkingu. „Ég mæli með því að fara reglulega á skyndihjálparnámskeið og setja sér einn dag árlega þar sem farið er yfir öll öryggismál á heimilinu með fjölskyldunni. Passa síðan að hús séu vel merkt, bjöllur í fjölbýli skráðar á rétta aðila og öryggisnúmer á sumarbústöðum.“ Að lokum vilja þær minna foreldra á að leyfa ekki ungum börnum að leika sér með SIM-kortalausa gamla síma því það eru mörg dæmi um að litlir puttar séu búnir að hringja jafnvel hundrað sinnum í neyðarlínuna á stuttum tíma án nokkurrar vitundar foreldranna,“ segja Elva og Kamilla.
Birtist í Fréttablaðinu Lögreglumál Slökkvilið Mest lesið Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Innlent Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Innlent Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Innlent Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Innlent Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Innlent Breyttur tónn og reiður yfir gagnrýni vegna flugvélagjafarinnar Erlent Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Innlent Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Innlent Fleiri fréttir Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Bíll fullur af bensínbrúsum lekur Fjórtán hvíldartímabrot á 28 dögum Skiptar skoðanir á vistaskiptum Úlfars sem hætti á miðnætti Bílar Íslendinga ekki tryggðir sé þeim stolið erlendis „Maður heyrir svona drunur áður en bylgjan kemur“ Helsti valdamaður flugsins var oftast utan sviðsljóssins Fljótandi ruslsuga fjarlægir rusl úr sjónum við gömlu höfnina Segir löngu kominn tíma á almennilegt eftirlit Ökumenn í tékki á Suðurlandsvegi og Grímsey skelfur „Jómfrúarræður“ séu barn síns tíma Rassía lögreglu á Suðurlandsvegi Ekki á dagskrá að flýta atkvæðagreiðslu um ESB-viðræður Sigldu fram á lík milli Engeyjar og Viðeyjar Þorsteinn Vilhjálmsson er látinn Metinn sakhæfur og málið fyrir luktum dyrum Grunur um frelsissviptingu í miðbænum Enn stærri jarðskjálfti á svipuðum slóðum Sjá meira