Þóttist vera lögreglumaður og leitaði á starfsmönnum hótels Sylvía Hall skrifar 4. mars 2019 17:54 Mál gegn hinum ákærða verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun. Vísir/Hanna
Héraðssaksóknari hefur ákært karlmann á fertugsaldri fyrir brot gegn valdstjórninni, ólögmæta nauðung og gripdeild fyrir að hafa þóst vera lögreglumaður, framkvæmt leit á starfsmönnum hótels í Reykjavík og tekið eigur starfsmanns ófrjálsri hendi. Atvikið átti sér stað þann 26. mars árið 2016 á hóteli í miðbæ Reykjavíkur. Eftir að hafa framkvæmt leit á þremur starfsmönnum hótelsins tilkynnti hann einum þeirra að hann væri handtekinn og leiddi hann út af hótelinu. Hinn ákærði ýtti þá starfsmanninum í götuna er bíll nálgaðist, gekk síðan áfram með hann að lögreglustöðinni við Hverfisgötu þar sem hinn ákærði var handtekinn skömmu síðar. Þá hefur önnur ákæra verið gefin út á hendur manninum fyrir umferðar- og fíkniefnalagabrot fyrir atvik í októbermánuði á síðasta ári. Maðurinn ók þar bifreið undir áhrifum fíkniefna og mældist í blóði hans amfetamín, MDMA og kannabisefni. Maðurinn var stöðvaður fyrir utan Hagkaup í Skeifunni og var hann með þrjár MDMA-töflur í fórum sínum. Málið gegn hinum ákærða verður þingfest í Héraðsdómi Reykjavíkur á morgun.
Dómsmál Mest lesið Sjö ára dómur Innlent Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Erlent „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Innlent Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Innlent Gul viðvörun gefin út fyrir landið allt Veður Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað Innlent Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Innlent Ekki ástæða til að rýma bankann Innlent Fleiri fréttir „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjö ára dómur Nýr forseti ASÍ, umdeildur sýknudómur og snjöll markaðsbrella Sakar ráðherra um fordóma og „hvíta forréttindablindu“ Ljósleiðaraslit á stofnstreng Mílu milli Akraness og Lambhaga „Fyrir neðan siðgæðiskröfur sem maður gerir til alþingismanna“ Allt að 40 offituaðgerðir hjá Klíníkinni fyrir áramót Georg Páll er næsti forseti ASÍ Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Sjá meira