Brynjar: Er ekki gíraður í leiki gegn ÍR, Breiðabliki og Skallagrím Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 14. mars 2019 21:27 Brynjar Þór Björnsson slapp við að mæta sínum gömlu félögum í KR í 8-liða úrslitunum vísir/daníel þór
Brynjar Þór Björnsson sagði andann sem var í Tindastólsliðinu vera að koma aftur eftir stórsigur Tindastóls á Keflavík í lokaumferð Domino‘s deildar karla í körfubolta í kvöld. Tindastóll vann 89-68 en hefði auðveldlega getað unnið mun stærri sigur, en Keflvíkingar náðu aðeins að laga stöðuna í lokin. „Við erum ekki búnir að eiga alvöru stórleik síðan við vorum rassskelltir á móti Stjörnunni 7. febrúar. Þá vorum við á slæmum stað, mjög slæmum stað,“ sagði Brynjar eftir leikinn í kvöld. „Við komum til baka, fáum inn PJ aftur og flæðið í leiknum var allt annað strax frá fyrstu æfingu þegar hann kemur til baka.“ „Með fullri virðingu fyrir ÍR, Breiðabliki og Skallagrím þá er ég ekki mjög gíraður fyrir þessa leiki, en þegar þú spilar á móti liðum í topp 5, topp 6, þá eru það alltaf stórleikir og við þurftum að vinna.“ Tindastóll átti á hættu að fara í fimmta sætið með tapi og þurfa að byrja úrslitakeppnina á útivelli gegn KR. Í staðinn mæta þeir Þór og byrja fyrsta leik á Sauðárkróki. „Þessi andi kom aftur, sem var fyrir áramót, maður fann hann mæta loksins og þá erum við erfiðir við að eiga.“ „Við veittum vonandi stuðningsmönnunum von í brjósti um að við erum betri en það sem við höfum verið að sýna.“ „Við erum að framkvæma allt betur og betur, nú er allt að opnast og þá erum við gríðarlega sterkir,“ sagði Brynjar Þór Björnsson.
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira