Ungt fólk kemst inn á heimavöll hamingjunnar á tombóluverði Tómas Þór Þórðarson skrifar 9. apríl 2019 14:00 Víkingar verða með ungt lið og mögulega unga stuðningsmenn. vísir/bára
Víkingar eru aðeins að hrista upp í ársmiðasölu sinni fyrir Pepsi Max-deild karla í fótbolta í sumar en þeir hafa sett í sölu árskort fyrir ungt fólk á aldrinum 16-25 ára (fæðingarár 1994-2003) sem kostar aðeins 4.990 krónur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Víkingum en verðið á árskortinu þýðir að hver leikur fyrir fólk á þessum aldri kostar aðeins 453 krónur. „Undanfarið hefur verið töluverð umræða og krafa um bætta umgjörð félaga á heimaleikjum og hafa félögin leitað ýmissa leiða til þess að fjölga áhorfendum,“ segir í tilkynningu Víkinga. „Með því að bjóða ársmiða á hagstæðu verði og sérstaklega fyrir aldurshópinn 16-25 ára er von okkar að áhorfendum fjölgi, en frítt verður fyrir yngri en 16 ára á Heimavelli hamingjunnar.“ Miðaverð á leiki Víkings verður 2.000 krónur eins og hjá öðum félögum en ársmiðakort á alla ellefu heimaleikina kostar 9.900 eða 900 krónur leikurinn. Þá bjóða Víkingar upp á Fjölskylduárskort fyrir 19.000 krónur sem gildir fyrir tvo fullorðna og fjóra einstaklinga á aldrinum 16 til 20 ára en samkvæmt tilkynningu Víkinga var það vinsæll kostur á síðasta ári. Víkingar spila fyrstu þrjá heimaleiki sína á Eimskipsvelli Þróttara vegna framkvæmda á nýjum gervigrasvelli liðsins í Víkinni en fyrsti skráði heimaleikur í Fossvoginum er í sjöundu umferð á móti HK 14. júní.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Gæti komið í bakið á stjörnuliði Álftaness Körfubolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira