Gekk berserksgang og braut innanstokksmuni Kristín Ólafsdóttir skrifar 3. apríl 2019 06:43 Annað málið kom upp í Hafnarfirði. Vísir/vilhelm
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu handtók tvo vegna heimilisofbeldis í gærkvöldi. Um níuleytið var lögregla kölluð til að heimili í Vesturbænum en þar hafði „komið til handalögmála“ milli sambýlisfólks, líkt og segir í dagbók lögreglu. Lögregla handtók ætlaðan geranda og kallaði eftir aðstoð fulltrúa barnaverndarnefndar og félagsþjónustu Reykjavíkurborgar, ætluðum þolanda og börnum þeirra til aðstoðar. Laust fyrir miðnætti var svo óskað eftir aðstoð lögreglu að heimili í Hafnarfirði vegna manns sem gekk þar berserksgang. Maðurinn er grunaður um að hafa meðal annars lagt hendur á maka sinn og brotið húsmuni í æðiskastinu. Hann var handtekinn og rannsóknarlögreglumaður tók við rannsókn málsins á vettvangi. Einnig kom fulltrúa barnaverndarnefndar að vettvangi til aðstoðar börnum og þolanda. Maðurinn var vistaður í fangageymslum lögreglu og verður hann yfirheyrður með morgninum. Þá var óskað eftir aðstoð lögreglu að heimili í austurborginni um áttaleytið í gærkvöldi. Þangað var kominn fyrrverandi maki húsráðanda og neitaði að yfirgefa staðinn að beiðni þess síðarnefnda. Sá fyrrnefndi var þó farinn á brott þegar lögreglu barð að garði, að því er segir í dagbók lögreglu.
Hafnarfjörður Lögreglumál Reykjavík Mest lesið Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Innlent Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Trump hleypir öllu í bál og brand, aftur Erlent Nálgist neyðarástand Innlent Lentu aftur í óförum Innlent Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Innlent Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Innlent Árásarmaðurinn sextán ára Erlent Skipun um að hægja á Starshield hafi komið úr Hvíta húsinu Erlent „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ Innlent „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Innlent Fleiri fréttir Hvetur Veðurstofuna til að brjóta odd af oflæti sínu Gróft kynlíf en ekki nauðgun samkvæmt klofnum Landsrétti Ungbörn áfram bólusett gegn RS-veiru Sögulegur dómur fyrir námsmenn í Hæstarétti Handtekinn fyrir hótanir og vopnalagabrot Nálgist neyðarástand Lentu aftur í óförum „Bara 15. október og við erum auðvitað uggandi yfir vetrinum“ „Auðvitað er þessi atburðarás ekki mjög sameinandi“ Tillaga um að fækka varaforsetum naumlega felld Ögurstund fyrir framtíð Eflingar innan ASÍ Hefur kvartað yfir stuðningsleysi í flokknum Krefjast milljarða vegna Barnaskóla Kársness Lögreglan lýsir eftir Halldóri Inga Hafa sett upp keðjur og bönd við Reynisfjöru Jón Gnarr segir sig úr þingflokki Viðreisnar „Þetta situr náttúrulega í manni“ Nauðsynlegt að ríkið fjármagni fleiri stöðugildi Niðurstaðan hafi áhrif á framtíð Eflingar innan ASÍ Siglfirðingar standa saman eftir áfall gærdagsins og spenna á ASÍ þingi Íslenskir kælar teknir af netinu eftir árás í Frakklandi Mótmælir harðlega vítissódatilraunum í Hvalfirði Biðlar til fólks að fara varlega í vetrarfærðinni Auglýsa eftir forstjóra Miðstöðvar um öryggisráðstafanir Anna Valdimarsdóttir er látin Vilja nýjan vindmæli: „Þökin fara á loft, falla niður og splundrast“ Borkjarnar vegna Eyjaganga gefa tilefni til bjartsýni Sköpuðust aðstæður fyrir „snælduvitlaust veður“ á Siglufirði Viðvaranir enn í gildi og vegir víða á óvissustigi Óvissustig vegna snjóflóðahættu í Súðavíkurhlíð Sjá meira