11. apríl er stór dagur fyrir Friðrik Inga Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. apríl 2019 17:00 Friðrik Ingi Rúnarsson með Íslandsbikarinn eftir að hann gerði Njarðvíkinga á Seltjarnarnesi í apríl 1998. Vísir/ÞÖK
Í dag eru liðin 28 ár frá því að Njarðvík varð Íslandsmeistari í körfubolta í sjöunda sinn 1991 og 23 ár síðan að Grindavík vann Íslandsmeistaratitilinn í fyrsta sinn 1996. Báðir titlarnir komu í hús 11. apríl og þjálfari beggja liða var Friðrik Ingi Rúnarsson. Uppáhaldsdagur körfuboltaþjálfarans Friðriks Inga Rúnarssonar hlýtur því að vera í dag ellefta dag aprílmánaðar. Þetta er líka mikill Íslandsmeistaradagur því Keflavík hefur einnig náð að verða Íslandsmeistari á þessum degi en það var árið 1992.Opnan í DV 12. apríl 1991.Skjámynd/DVFriðrik Ingi Rúnarsson var enn bara 22 ára og á sínu fyrsta ári sem þjálfari í úrvalsdeild karla þegar Njarðvíkingar unnu Íslandsmeistaratitilinn 11. apríl 1991 eftir sigur í oddaleik á móti Keflavík. Fimmti og síðasti leikurinn fór fram í Ljónagryfjunni í Njarðvík. Njarðvík vann oddaleikinn á móti Keflavík með níu stigum eða 84-75. Gunnar Örlygsson var langstigahæstur í Njarðvíkurliðinu með 27 stig en Rondey Robinson var með 17 stig og Teitur Örlygsson skoraði 15 stig. Teitur var einmitt einu ári eldri en Friðrik Ingi þjálfari.ViðtaL við Friðrik Inga í DV 12. apríl 1991.Skjámynd/DVForsíðumyndin í DV 12. apríl 1996.Skjámynd/DVFriðrik Ingi var búinn að prófa sig hjá KR þegar hann kom til Grindavíkur og var enn bara 27 ára þegar hann vann sinn annan Íslandsmeistaratitil sem þjálfari þegar Grindavík vann sigur á Keflavík í sjötta leik úrslitaeinvígisins 11. apríl 1996. Leikurinn fór fram í Keflavík. Á fyrsta tímabili Friðriks Inga með Grindavík tapaði liðið í úrslitaeinvíginu á móti Njarðvík en það var annað árið í röð sem Grindvíkingar fengu silfrið. Þeir kláruðu aftur á móti dæmið og unnu sinn fyrsta titil á öðru ári Friðriks Inga. Íslandsmeistaratitilinn var loksins í höfn eftir 22 stiga sigur á Keflavík, 96-73, í Keflavík í sjötta leik einvígsins en þá þurfti að vinna fjóra leiki til að verða meistari. Rodney Dobart var stigahæstur hjá Grindavík með 21 stig en þeir Marel Guðlaugsson og Hjörtur Harðarson voru með 18 stig hvor. Hjörtur var líka með 8 fráköst og 8 stoðsendingar. Guðmundur L Bragason, fyrirliði, var með 12 stig og 5 stoðsendingar en hann var einu ári eldri en Friðrik Ingi þjálfari.Íþróttaopna DV 12. apríl 1996.Skjámynd/DVFriðrik Ingi hefur unnið einn Íslandsmeistaratitil í viðbót en hann gerði Njarðvíkina að Íslandsmeisturum 1998. Sá titill vannst aftur á móti á Seltjarnarnesinu 19. apríl 1998.Baksíða Morgunblaðsins 12. apríl 1991.Skjámynd/MorgunblaðiðViðtal Morgunblaðsins við Friðrik Inga Rúnarsson 12. apríl 1991.Skjámynd/Morgunblaðið
Dominos-deild karla Mest lesið „Pep Guardiola eyðilagði fótboltann“ Enski boltinn Til í að taka skóna af hillunni fyrir Barcelona Fótbolti Dagfarsprúði maðurinn aldrei verið eins reiður Sport Madrídingar á tæpasta vaði Fótbolti Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Körfubolti Naumur sigur dugði City Enski boltinn Marlena er sigurvegari Bakgarðshlaupsins Sport Serbarnir fá aldrei aftur að dæma Handbolti Varalið Villa kreisti út sigur á C-deildarliðinu Enski boltinn Fleiri fréttir Nóg að gera á skrifstofu Stjörnunnar Shabazz semur við Njarðvík Shaq í Stjörnuna Njarðvíkingar losa sig við Bandaríkjamanninn rétt fyrir mót Þarf ekkert að taka afa bak við hlöðu og skjóta hann Viktor aftur heim í Stjörnuna Clark slegin í augað í frumraun Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Sjá meira