Tveggja stafa tölur í kortunum Sunna Kristín Hilmarsdóttir skrifar 10. apríl 2019 08:07 Hitaspákort Veðurstofunnar fyrir klukkan 15 á morgun.
Það má búast við allt að tíu stiga hita á nokkrum stöðum á landinu á morgun ef marka má spákort Veðurstofunnar. Í dag verður hins vegar eilítið kaldara en bjart um nánast allt land. Í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofunnar segir að víðáttumikil lægð sé nú stödd suður af Hvarfi en hæð er norðaustur af landinu. Staðan er svipuð og hún var í gær og verður því veður einnig með svipuðu móti. Það má búast við heiðskíru veðri víða norðanlands en skýjuðu með köflum annars staðar og lítilsháttar vætu um suðaustanvert landið. Hiti í dag verður á bilinu þrjú til níu stig en norðanlands má víða búast við vægu næturfrosti. Á morgun er því svo spáð að hæðin hreyfist til austurs og verður vindur suðaustlægari. Víða verða átta til þrettán metrar á sekúndu og dálítil rigning en hægari vindur og áfram þurrt norðan til. Þá hlýnar einnig þar sem hiti verður á bilinu sex til ellefu stig.Veðurhorfur á landinu:Austlæg átt 3-8 m/s, en 10-15 syðst á landinu. Léttskýjað norðantil á landinu en skýjað með köflum annars staðar, og smáskúrir um suðaustanvert landið. Suðaustan 8-15 annað kvöld og dálítil rigning, en hægari vindur og áfram þurrt norðanlands. Hiti 3 til 9 stig, en kaldara að næturlagi. Hlýnar heldur á morgun.Á fimmtudag:Suðaustan 8-15 m/s, hvassast með suðurströndinni, og rigning með köflum, en heldur hægari og léttskýjað norðanlands. Hiti 5 til 10 stig.Á föstudag:Suðaustan 13-20 m/s og dálítil rigning eða súld. Heldur hægari vindur og þurrt á Norður- og Austurlandi. Hiti 6 til 11 stig.Á laugardag:Sunnan og suðaustan 13-20 m/s og talsverð rigning, en úrkomulíltið um norðanvert landið. Hiti breytist lítið.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Erlent Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Innlent Fleiri fréttir Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Ekki ástæða til að rýma bankann Allt virðist mega ef BDSM-orðið er notað „Ég ætla ekki að fara í nein orðaskipti við Jón“ Sjá meira