Engin stjórnarandstaða í kosningum í Benín Kjartan Kjartansson skrifar 28. apríl 2019 13:34 Svo merkilega vildi til að aðeins flokkar sem styðja Talon forseta voru taldir kjörgengir. Vísir/EPA
Kosið er til þings í Benín í dag en enginn fulltrúi stjórnarandstöðunnar í landinu er í framboði. Yfirkjörstjórn Benín komast að þeirri niðurstöðu í síðasta mánuði að aðeins tveir flokkar sem eru hliðhollir Patrice Talon, forseta, væru kjörgengir. Fimm milljónir manna eru á kjörskrá í Vestur-Afríkuríkinu. Netaðgangur hefur verið takmarkaður og lokað á samfélagsmiðla og samskiptaforrit í aðdraganda kosninganna. Mannréttindasamtök hafa gagnrýnt að stjórnvöld hafi bannað friðsamleg mótmæli gegn því að stjórnarandstaðan hafi verið útilokuð frá kosningunum, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. Öryggissveitir hafa einnig gengið hart fram gegn mótmælendum. Í síðustu viku var tárasgasi beitt á mótmælum vegna kosninganna sem tveir fyrrverandi forsetar landsins tóku þátt í. Ný kosningalög settu ýmsar kvaðir á stjórnmálaflokka. Þannig þurfa þeir nú að reiða fram jafnvirði um 52 milljóna króna til að fá að bjóða sig fram í kosningum. Tuttugu flokkar voru í framboði í síðustu kosningum fyrir fimm árum. Talon forseti hefur sagt að nýju kosningalögin hafi átt að grisja úr þeim hundruð stjórnmálaflokkum sem eru starfandi í landinu. Hann hélt því fram að hann gæti ekki frestað kosningunum til að gefa flokkunum tækifæri til að aðlaga sig nýju lögunum.
Benín Mest lesið Neitar að hafa mætt með fóstur í krukku Innlent Grunur um fjárkúgun í manndrápsmáli Innlent Feðgarnir handteknir í heimahúsi með alvarlega áverka Innlent Gekk á milli bíla og braut rúður Innlent Aðalmeðferð í máli Írisar Helgu að hefjast Innlent Tjónið á Seltjarnarnesi hlaupi líklega á milljónum Innlent Fjölmenni í héraðsdómi Innlent Mega ekki teygja starfsemi tjaldsvæðisins yfir götuna Innlent „Svívirðileg svik“ Erlent Þekkt fyrirtæki nýtt í skipulagðri glæpastarfsemi Innlent Fleiri fréttir Kælar matvöruverslana hakkaðir á ný Ríkin sem barist er um: Blá flóðbylgja eða smáskvetta? „Svívirðileg svik“ Netárásir á almannavarnarkerfi Úkraínumanna og Rússa Níu manns um borð þegar flugvél hrapaði á umferðargötu Starfsmenn Disney World handteknir í stóru barnaníðsmáli Yfirhalning hafi verið nauðsynleg „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Sjá meira