„Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Smári Jökull Jónsson skrifar 1. nóvember 2026 14:32 Friðjón segir að Donald Trump og ríkisstjórn hans gæti lent í vandræðum nái demókratar meirihluta í báðum deildum bandaríska þingsins. Nefnir hann sérstaklega Pete Hegseth varnarmálaráðherra í því samhengi. Vísir/Getty/Vihlem Mjög miklar líkur eru á að Demókratar vinni sigur í báðum þingdeildum í Bandaríkjunum í kosningum á þriðjudag að sögn sérfræðings um bandarísk stjórnmál. Fari svo þá blasi við að stofnaðar verði rannsóknanefndir sem muni skoða embættisaðgerðir Trump Bandaríkjaforseta og ríkisstjórnar hans.
Þingkosningar eru fram undan í Bandaríkjunum á þriðjudag og er staða Demókrata í könnunum góð. Að sögn Friðjóns Friðjónssonar, borgarfulltrúa og sérfræðings í bandarískum stjórnmálum, eru yfirgnæfandi líkur á að Demókratar vinni sigur í fulltrúadeild og mjög góðar líkur sömuleiðis á að þeir nái meirihluta í öldungadeildinni. „Menn eru að meta þetta svona á bilinu 65-75 prósent líkur en það er samt sem áður alltaf möguleiki á einhverju öðru. Þetta er ekki ein kosning, þetta eru margar kosningar þannig að þær þurfa allar að falla með demókrötum, allavega flestar til þess að þeir nái tökum á öldungadeildinni,“ sagði Friðjón í viðtali í hádegisfréttum Bylgjunnar. Stjórnkerfið muni lenda í vandræðum Kosningaþátttaka hafi verið góð og nú þegar séu um 40 milljón atkvæði komin í hús. Fari svo að demókratar nái meirihluta í báðum deildum muni Trump lenda í vandræðum. „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar og það verður farið í mál inni í deildunum til þess að kanna embættisaðgerðir Trump en ekki síður ráðherranna hans,“ segir Friðjón. „Þeir munu lenda í svona embættismissismálum, impeachment eins og það heitir á ensku. Þannig að allt stjórnkerfið í kringum framkvæmdarvaldið og kringum Trump mun lenda í vandræðum með að vinna vinnuna sína.“ „Pólitískt séð betra fyrir demókrata að hafa Trump í embætti“ Hann segir forseta þó áður hafa lent í þessari stöðu. Trump muni hafa einhverja möguleika á að færa fjármagn á milli verkefna þó að fjárveitingavaldið færist til Demókrata nái þeir meirihluta. Trump geti þó stjórnað með tilskipunum. Friðjón telur að demókratar muni beina spjótum sínum að embættismönnum eins og varnarmálaráðherranum Pete Hegseth, Pam Bondi fyrrum dómsmálaráðherra og Steve Witkoff sérstökum erindreka Bandaríkjastjórnar. Þá verði heimavarnarmálin sömuleiðis skoðuð sérstaklega þar sem herlið innflytjendaeftirlitsins ICE sé undir. „Mér finnst ólíklegt að þeir fari í mál til embættismissis á hendur Trump, vegna þess að pólitískt séð er betra fyrir demókrata að hafa Trump í embætti heldur en að hleypa JD Vance í embætti og vera sitjandi forseti í næstu kosningum þegar hann getur boðið sig fram.“ „Síðan eru alltaf einhverjir sem koma á óvart“ Tvö ár eru eftir af kjörtímabili Donalds Trump en forsetakosningar fara fram í nóvember 2028. Friðjón segir nú þegar nokkuð ljóst hverjir munu bítast um tilnefningar flokkanna tveggja. „Það blasir við að Gavin Newson, ríkisstjóri Kaliforníu, gefi kost á sér. Það er mikið talað um Jon Ossoff, öldungadeildarþingmann Georgíu, og Pete Buttigieg, sem bauð sig fram fyrir fjórum árum. Svo eru auðvitað einhverjir á brúninni að tilkynna um framboð en það eru mjög margir farnir af stað að skoða málin og safna liði,“ segir Friðjón og bætir við að enginn hafi búist við því fyrirfram að Trump yrði forseti árið 2016. „Repúblikanamegin munu JD Vance og Marco Rubio takast á og verða stærstu nöfnin þeim megin. Síðan eru alltaf einhverjir sem koma á óvart.“
Þingkosningar í Bandaríkjunum Donald Trump Bandaríkin Tengdar fréttir Nóg sé komið af Trump Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi núverandi Bandaríkjaforseta harðlega á kosningafundi í Ohio í gær í aðdraganda þingkosninga. Donald Trump gæti engum kennt nema sjálfum sér um hátt verðlag og nú væri nóg komið. 25. október 2026 07:53 Vance biðlar til ungra reiðra manna Af þeim hópum kjósenda sem skiptu hvað mestu máli við að koma Donald Trump aftur til valda voru ungir menn meðal þeirra áhrifamestu. Margir þeirra segjast hins vegar hafa snúið baki við Trump og hafa lýst yfir reiði í garð ríkisstjórnar hans vegna stríðsins gegn Íran, hækkandi verðlags og annarra atriða. Repúblikanar telja þó að hægt sé að ná til þeirra og að gífurlega mikilvægt sé að ná þeim aftur á kjörstað í þingkosningunum í næsta mánuði. 9. október 2026 19:42 Mest lesið Maður látinn eftir líkamsárás í Breiðholti Innlent Reykur barst um sameign og vatn lak niður í næstu íbúðir Innlent Spörkuðu, hræktu og léku öllum illum látum Innlent Vara við nálum í hrekkjavökunammi Innlent Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Erlent Hundi bjargað af svölum og einn fluttur á slysadeild Innlent Koma langt að til að sjá hvar Agnes var hálshöggvin Innlent Tveir handteknir með vopn í unglingapartíi Innlent Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Erlent „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Erlent Fleiri fréttir „Rannsóknarnefndir verða stofnaðar“ Barist um samband Búlgaríu við Rússland Snerist upp í ofbeldi þegar nóttin skall á Grunaðir um að skipuleggja óeirðir á Tenerife Fengu hjörtu Akureyringa að láni í bandarísku eyðimörkinni Stjórnlagadómstóll Póllands sakar stjórnvöld um valdarán Búa sig undir þriðju helgi mótmæla Samþykkja sölu á hundruðum Patriot-flauga Skoða hvort konum hafi verið smyglað í sumarbúðir kóngafólksins „Ég hafði ekki séð fyrir mér líf eftir þessa nótt“ „Þeir drápu okkur“: Einum síðasta frjálsa fjölmiðli Rússlands lokað „Þú ert ógeðslegur, komdu þér í form“ Hófu aftur árásir á olíuvinnslur eftir blóðbað Sveppamorðingi fær enga reynslulausn Flókið stjórnarmyndunarferli fram undan í Ísrael Sagður hafa átt í samskiptum við kínverskan njósnara Óvænt ákvörðun þingforsetans reitir vinstrimenn til reiði Tvö mannskæð slys vekja upp spurningar um öryggi Hafnar ásökunum um kosningasvindl Blóðbað á lestarpalli Krefjast enn að forsetinn verði dæmdur til dauða Þriggja daga þjóðarsorg hafin á Spáni Telja síðustu atkvæðin í Ísrael Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Sjá meira
Nóg sé komið af Trump Barack Obama, fyrrverandi forseti Bandaríkjanna, gagnrýndi núverandi Bandaríkjaforseta harðlega á kosningafundi í Ohio í gær í aðdraganda þingkosninga. Donald Trump gæti engum kennt nema sjálfum sér um hátt verðlag og nú væri nóg komið. 25. október 2026 07:53
Vance biðlar til ungra reiðra manna Af þeim hópum kjósenda sem skiptu hvað mestu máli við að koma Donald Trump aftur til valda voru ungir menn meðal þeirra áhrifamestu. Margir þeirra segjast hins vegar hafa snúið baki við Trump og hafa lýst yfir reiði í garð ríkisstjórnar hans vegna stríðsins gegn Íran, hækkandi verðlags og annarra atriða. Repúblikanar telja þó að hægt sé að ná til þeirra og að gífurlega mikilvægt sé að ná þeim aftur á kjörstað í þingkosningunum í næsta mánuði. 9. október 2026 19:42