Eiríkur Stefán Ásgeirsson, fréttastjóri á íþróttadeild Sýnar, segir mikinn metnað í allri dagskrárgerð og áhorfendur eigi von á góðu.

Þetta er mikil skemmtun og leikirnir margir á góðum útsendingartíma fyrir íslenska áhorfendur.“
Hátt í 200 beinar útsendingar frá íslenska boltanum
„Við munum gera íslenska boltanum góð skil í sumar eins og áður og með öllu munu beinar útsendingar frá leikjum nálgast tvö hundruð. Allt að sjötíu beinar útsendingar verða frá Pepsi Max-deildum, bæði karla og kvenna. Pepsi Max-deild karla hefur verið flaggskip Stöðvarinnar yfir sumartímann og leggjum við mikinn metnað í að sinna deildinni eins vel og kostur er.


„Stöð 2 Sport sýnir fótbolta frá Englandi, Spáni og Ítalíu og einnig eru tvær Evrópukeppnir í fótbolta á dagskránni. Þó svo við munum ekki sýna ensku úrvalsdeildina þá erum við áfram með stóran hluta leikja bresku liðanna gegnum bikarkeppnirnar tvær, ensku Championship-deildina og Evrópukeppnirnar. Fjöldi leikja þeirra bestu í Englandi er því áfram í beinni hjá okkur auk þess sem að margir bestu fótboltamenn heims eru í beinni útsendingum hjá okkur í hverri viku í spænsku La Liga-deildinni sem og Seria A á Ítalíu,“ segir Eiríkur.
„Undankeppni EM 2020 verður á dagskrá í sumar og aftur í haust. Rúsínan í pylsuendanum er úrlitakeppni EM sem fram fer í 12 borgum víða um Evrópu og allt sýnt á Stöð 2 Sport. Þetta er risastórt verkefni að takast á við og tilhlökkunarefni að fá að sýna frá EM 2020. Vonandi verður Ísland með. Þá verða undanúrslit og úrslit í Þjóðadeildinni, Nations League, í júní. Þar munu fjögur bestu liðin í A deildinni, þar sem Ísland var, fara í úrslitahelgi í byrjun júní og fara leikirnir allir fram í Portúgal.“

Sportið snýst ekki bara um íslenskan og evrópskan fótbolta. Amerískur fótbolti nýtur vaxandi vinsælda hjá áhorfendum en NFL deildin er sýnd á Stöð 2 Sport. Formúlan verður á sýnum stað og þá á UFC stóran hóp fylgjenda á Íslandi.
Allt golf hefur nú verið fellt inn í áskrift að Sportpakkanum sem stóreykur framboðið á efni sem áskrifendur Sportpakkans hafa aðgang að. Á Stöð 2 Golf eru öll risamót ársins og allar stærstu mótaraðirnar í bandarísku og evrópsku golfi.

„Þá hófst einnig nýtt tímabil í Formúlunni í mars og stendur út nóvember. Það eru spennandi hlutir að gerast í Formúlunni og við finnum fyrir meiri áhuga núna í ár en síðustu ár. Við verðum með sterka umfjöllun um Formúluna og gerum henni góð skil.“

„Svo er sérstaklega gaman að segja frá pílukastinu en það varð óvæntur „hittari“ í dagskránni hjá okkur. Við sýndum frá HM í pílukasti yfir jólin og fengum stórkostleg viðbrögð. Stemmingin á þeim mótum er afar skemmtileg og skilaði sér vel til áhorfenda heima í stofu,“ segir Eiríkur en meðal áhorfenda í sal má gjarnan sjá eldheita stuðningsmenn keppenda í litríkum búningum klingja stórum bjórkrúsum.
„Á fimmtudagskvöldum sýnum við frá úrvalsdeildinni í pílukasti sem endar svo með úrslitum í vor.“

Stöð 2 Sport leggur mikinn metnað í alla umfjöllun um íslenskar íþróttir. Pepsi Max-mörkin ruddu brautina fyrir frekari þáttagerð og njóta mikilla vinsælda, rétt eins og þættir um bæði körfuna og handboltann, Domino‘s Körfuboltakvöld og Seinni bylgjuna.
„Stöð 2 Sport hefur sýnt frá erlendum íþróttum í mörg ár en síðustu tíu ár hefur innlend dagskrárgerð aukist jafnt og þétt sem og sýningar frá íslenskum íþróttum. Nú eru Pepsi Max-mörkin að rúlla níunda árið í röð og sá þáttur hefur vaxið með hverju ári og er í dag leiðandi í umfjöllun um íslenska knattspyrnu, okkar vinsælustu íþrótt, og hefur skapað grundvöll fyrir aðra þætti. Þar má nefna Domino‘s Körfuboltakvöld en sá þáttur hóf göngu sína fyrir fjórum árum. Hann heppnaðist mjög vel og var mikil innspýting inn í íslenskan körfubolta svo eftir var tekið í íslensku íþróttalífi,“ segir Eiríkur.
Þátturinn hafi fært alla umræðu og umfjöllun um íslenskan körfubolta á áður óþekkt plan.

Í kjölfarið á góðu gengi Domino‘s Körfuboltakvölds fór Stöð 2 Sport af stað með þátt um íslenskan handbolta, Seinni bylgjuna, sem og um íslenska kvennafótboltann, Pepsi Max deild kvenna. Olísdeildin hóf göngu sína á Stöð 2 Sport fyrir tveimur árum.
„Þar höfum við séð sömu áhrif. Umræða og umfjöllun um handbolta hefur aukist, sem sýnir okkur að við erum á réttri leið. Við erum mjög stolt af öllum þáttunum okkar og allri dagskrárgerðinni sem og umfanginu og stærðargráðunni af beinu útsendingunum okkar. Því þegar allt er talið sýnum á ári sýnum við beint frá hátt í fjögur hundruð íslenskra leikjum á ári á Stöð 2 Sport.“
Lokahnykkurinn á vetrinum
Það er því spennandi dagskrá framundan í sumar en áður en að henni kemur lýkur vetrinum á nokkrum hápunktum sem óþarfi er að missa af.
„Maí mánuður er gósentíð bæði í körfubolta og handbolta. Nú er tímabilinu nýlokið í körfuboltanum sem og í Olís deild kvenna en úrslitakeppnin í Olís deild karla er í hámæli. Á erlendum vettvangi eru hápunktarnir í fótboltadeildunum einnig að klárast í maí, hverjir komast upp í ensku úrvalsdeildina og hverjir verða krýndir meistarar. Hæsti hápunktur er svo úrslitaleikur Meistaradeildar Evrópu í Madríd, þann 1. júní. Við verðum með veglegar útsendingar frá öllu saman,“ segi Eiríkur.
Nánar er hægt að kynna sér allt sem framundan er á Stod2.is/framundan í beinni og tryggja sér áskrift að Stöð 2 Sport á stod2.is, í síma 1817 eða í næstu verslun Vodafone.
Þessi kynning er unnin í samstarfi við Stöð 2.