Ung kona lést úr hundaæði í Noregi Kristín Ólafsdóttir skrifar 7. maí 2019 08:09 Konan lést í faðmi fjölskyldu sinnar á sjúkrahúsinu í Førde. Vísir/getty
Tvítug kona lést úr hundaæði á sjúkrahúsi í Førde í vesturhluta Noregs í gærkvöldi. Konan var bitin af hundi þegar hún var á ferðalagi um Suðaustur-Asíu fyrir tveimur mánuðum og veiktist heiftarlega í kjölfarið. Í frétt NRK segir að sjúkrahúsið hafi fengið upplýsingar um hundinn í síðustu viku og á laugardag var staðfest að konan væri smituð af hundaæði. Konan var á ferð með samlöndum sínum sem eru nú undir eftirliti á heilsugæslustöðvum í heimahéruðum sínum. Þetta er í fyrsta sinn í rúm 200 ár sem sjúklingur greinist með hundaæði á meginlandi Noregs, að því er segir í frétt NRK. Hundaæði er banvænn sjúkdómur sem orsakast af veirum sem sennilega eiga uppruna sinn í leðurblökum en geta sýkt mörg önnur spendýr sem geta borið hann til manna, s.s. refi, hunda og ketti. Veiran finnst í líkamsvessum og vefjum smitaðra dýra og dæmi eru til um smit við bit. Sjúkdóminn er ekki að finna á Íslandi og fleiri eyríkjum en hann fyrirfinnst í öllum heimsálfum, að því er segir á vef Landlæknisembættisins.
Noregur Mest lesið Húsráðandi bað lögreglu um að vísa fimmtíu úr samkvæmi Innlent Eina sýklalyf sinnar tegundar tvöfaldast í verði Innlent „Það er eins og Snæfellsnesið sé komið í gang“ Innlent Óttast að Suðurlandið verði að „eyðimörk“ í náinni framtíð Innlent Skilur ekki tilgang milljóna króna auglýsingar Innlent „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Erlent Hópur manna réðst á Íslending í Liverpool Innlent Prestur á Nesinu segir nei takk við greiðslum Innlent Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Erlent Hafdís og Sandra vilja stjórna Litla-Hrauni Innlent Fleiri fréttir Dómsuppkvaðning í þöggunarmáli viku fyrir innsetningu „Við getum öll látið fé af hendi rakna“ Johnson endurkjörinn þingforseti með naumum meirihluta Tímabært að Grænland taki skref í átt að sjálfstæði Maður lést í sprengingu um borð í skipi Smyril Line Maduro leggur fé til höfuðs keppinauti sínum Lögreglu tókst ekki að handtaka forsetann afsetta í Suður-Kóreu Skaut sig áður en bíllinn sprakk Talinn hafa staðið einn að verki Hringir Satúrnusar hverfa á þessu ári Birtu óskýra mynd á netinu og leystu eitt elsta mannshvarfsmál Bretlands Varnarmálaráðherrann sem Netanjahú rak hættir á þingi Rannsaka hvort Tesla-sprengingin hafi verið hryðjuverk Fjöldamorðinginn í Svartfjallalandi svipti sig lífi Flutningur á rússnesku gasi um Úkraínu til Evrópu stöðvast að fullu Ellefu særðir eftir skotárás við skemmtistað í New York Tala látinna hækkar í fimmtán Einn lést er Tesla sprakk fyrir utan Trump-hótel Tvö börn meðal látinna eftir skotárás á veitingastað Tvær heimagerðar sprengjur fundust á svæðinu Árásarmaðurinn skotinn til bana Tíu látnir eftir að bíl var ekið á fólk í New Orleans Ungur maður lést í flugeldaslysi í Danmörku Íslenski fjárhundurinn viðurkenndur af Kennel samtökunum Fyrstu börn Beta-kynslóðarinnar fæðast á morgun Handtökuheimild á hendur forsetanum samþykkt Heiðrar lækna sína í miðri krabbameinsmeðferð Hóta Hútum sömu „aumu örlögum“ og Hamas og Hezbollah Trump kemur Johnson til bjargar Vöruðu við fuglum rétt fyrir slysið Sjá meira