Hefur skorað á 16 tímabilum í röð í efstu deild Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 6. maí 2019 07:00 Óskar Örn skoraði eitt mark og lagði upp annað í sigri KR á ÍBV, 3-0. vísir/bára
Óskar Örn Hauksson, fyrirliði KR, skoraði sitt fyrsta mark í sumar í 3-0 sigri KR-inga á Eyjamönnum í Vesturbænum í 2. umferð Pepsi Max-deildar karla í gær. Óskar skoraði annað mark KR með góðu skoti á 66. mínútu. Pálmi Rafn Pálmason og Björgvin Stefánsson skoruðu hin mörk KR-inga sem eru með fjögur stig í 4. sæti deildarinnar. Óskar lagði mark Björgvins upp og átti einnig stóran þátt í marki Pálma Rafns. Óskar, sem er 34 ára, hefur leikið samfleytt í efstu deild frá 2004 og tímabilið í ár er hans sextánda í efstu deild. Hann hefur nú skorað a.m.k. eitt mark á öllum 16 tímabilunum sínum í efstu deild, alls 69 mörk í 289 leikjum. Óskar skoraði sitt fyrsta mark í efstu deild í 3-2 sigri Grindavíkur á Keflavík 28. júní 2004. Óskar skoraði alls fjögur mörk í 16 leikjum fyrsta tímabilið sitt í efstu deild. Njarðvíkingurinn lék með Grindavík í þrjú tímabil en gekk í raðir KR fyrir tímabilið 2007 og hefur verið þar síðan, fyrir utan tvö stutt stopp í atvinnumennsku, annað hjá Sandnes Ulf í Noregi og hitt hjá Edmonton í Kanada. Óskar hefur alls skorað 57 mörk fyrir KR í efstu deild og vantar bara fimm mörk til að jafna við Ellert B. Schram sem á markamet KR-inga í efstu deild. Óskar vantar einnig aðeins tvo leiki til að jafna leikjamet Þormóðs Egilssonar.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - ÍBV 3-0 | Þolinmæði þörf þegar KR lagði ÍBV örugglega KR-ingar unnu góðan 3-0 sigur á Eyjamönnum en það þurfti þolinmæði til. 5. maí 2019 20:00 Pedro: Veit ekki hvort Pálmi var rangstæður ÍBV bíður enn eftir sínum fyrsta sigri og fyrsta marki í Pepsi Max-deild karla á tímabilinu. 5. maí 2019 19:46 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Ronaldo var skilinn eftir heima Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: KR - ÍBV 3-0 | Þolinmæði þörf þegar KR lagði ÍBV örugglega KR-ingar unnu góðan 3-0 sigur á Eyjamönnum en það þurfti þolinmæði til. 5. maí 2019 20:00
Pedro: Veit ekki hvort Pálmi var rangstæður ÍBV bíður enn eftir sínum fyrsta sigri og fyrsta marki í Pepsi Max-deild karla á tímabilinu. 5. maí 2019 19:46