Jónmundur er margverðlaunaður barþjónn og segir góða kokteila ekki hrista fram úr erminni, mikill undirbúningur liggi að baki góðum árangri og stífar æfingar.

Úrslitakeppnin á Kjarvalsstöðum var lokahnykkurinn í löngu ferli en World Class keppnin hefur staðið yfir í níu mánuði. Keppendur fá ýmiskonar áskoranir, til dæmis að para drykki við mat og blindsmakka drykki og greina nákvæmt innihald þeirra. Að lokum kepptu fjórir barþjónar til úrslita, Teitur Ridderman Schiöth frá Pablo Discobar, Víkingur Þorsteinsson frá Apótekinu, Sævar Helgi Örnólfsson frá Sushi Social og Jónmundur en hann er einnig barþjónn á Apótekinu.
Loka áskorunin var að búa til átta kokteila á átta mínútum og útskýra þá í þaula á meðan. „Við fengum tvo tíma til að undirbúa kokteilana og svo átta mínútur í að búa þá alla til. Þetta var ótrúlega skemmtilegt.“
Jónmundur verður fjórði barþjónninn sem keppir fyrir Ísland í World Class barþjónakeppninni en í fyrra náði Orri Páll Vilhjálmsson frábærum árangri og komst áfram í topp 20. World Class barþjónakeppnin hefur verið mikil lyftistöng fyrir íslenska veitingamenningu en henni má líka við Michelin stjörnu í matreiðslubransanum. Jónmundur segir barmenningu hafa breyst mikið á Íslandi síðustu árin og einnig barþjónamenninguna.

Fær sér bara einn
Hver skyldi uppáhalds kokteill Jónmundar vera? „Sjálfur fer ég reyndar ekki oft á barinn en þegar ég slysast þangað inn panta ég helst beiskan og sterkan drykk, annað hvort gin og tónik, eða Negroni. Ég fæ mér yfirleitt bara einn. Ég drekk ekki til að verða fullur,“ segir Jónmundur. Honum leiðist aldrei í vinnunni. „Það er adrenalínkikkið, hraðinn og keyrslan fyrir aftan barinn sem gerir þetta svo ótrúlega skemmtilegt. Þetta starf er augljóslega ekki fyrir hvern sem er og oft mikið álag en í lok hverrar einustu vaktar finn ég vel af hverju ég er í þessu starfi. Á Apótek erum við eins og stór fjölskylda og miklir vinir.“
Dómnefndina skipuðu Orri Páll Vilhjálmsson, Andri Davíð Pétursson, Jónas Heiðarr og Kevin Patnode.
