Eru Stjörnumenn ekki í formi? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 31. maí 2019 22:00 Þreytulegir Stjörnumenn í lok leiks á móti Víkingum. Vísir/Bára
Stjarnan hefur enn ekki fengið á sig mark í fyrri hálfleik í Pepsi Max deild karla í sumar en liðið er samt bara í sjöunda sæti deildarinnar eftir sex umferðir. Ástæðan eru vandræði liðsins í seinni hálfleik. Það mætti halda að Stjörnumenn séu ekki í formi þegar tölfræði liðsins í Pepsi Max deildinni er skoðuð og þá sérstaklega hvenær liðið er að fá á sig mörkin í leikjunum. Aðeins eitt lið í deildinni er með betri markatölu í fyrri hálfleik og það er topplið Skagamanna. ÍA er 5 mörk í plús fyrstu 45 mínútur leikjanna sinna en Stjarnan er 4 mörk í plús á sama tíma. En hvernig hefur Stjarnan þá farið að því að tapa tíu stigum í fyrstu sex leikjum sínum? Jú markatala liðsins í seinni hálfleik er sex mörk í mínus. Stjörnuliðið hefur fengið á sig 9 mörk í seinni hálfleiknum eða fleiri en öll önnur lið Pepsi Max deildarinnar. Stjarnan hefur líka aðeins skorað þrjú mörk síðustu 45 mínútur leikjanna en aðeins ÍBV liðið hefur skorað færri mörk eftir hlé.Næsti leikur Stjörnunnar í Pepsi Max deild karla er heimaleikur á móti Val á sunnudagkvöldið en leikurinn hefst 19.15 og er í beinni á Stöð 2 Sport. Hér fyrir neðan má sjá að Stjörnumenn eru við toppinn þegar kemur að bestu markatölunni í fyrri hálfleik en við botninn yfir verstu markatöluna í seinni hálfleik.Besta markatalan í fyrri hálfleik í Pepsi Max deild karla: ÍA +5 (6-1)Stjarnan +4 (4-0) Breiðablik +2 (3-1) KR +1 (4-3) FH +1 (4-3)Versta markatalan í seinni hálfleik í Pepsi Max deild karla: ÍBV -7 (1-8)Stjarnan -6 (3-9) Víkingur -2 (6-8) HK -1 (4-5)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira