Stjórnendabreytingar hjá Mentor Birgir Olgeirsson skrifar 7. júní 2019 14:40 Vilborg Einarsdóttir, stofnandi Mentor, lætur af störfum eftir farsæla uppbyggingu félagsins í næstum 20 ár.
Elfa Svanhildur Hermannsdóttir hefur verið ráðin sem framkvæmdastjóri InfoMentor á Íslandi. Hún tekur við starfinu af Vilborgu Einarsdóttur, stofnanda Mentor, sem lætur af störfum eftir farsæla uppbyggingu félagsins í næstum 20 ár. Elfa hefur verið forstöðumaður fræðslumiðstöðvar Vestfjarða frá árinu 2017 en starfaði þar áður um árabil sem þjónustustjóri og kennsluráðgjafi hjá Þjónustu-og þekkingarmiðstöð blindra og sjónskertra. Elfa er með mastersgráðu í verkefnastjórnun, framhaldsgráðu í stjórnun menntastofnana og sérkennslufræðum. Í grunninn er hún grunnskólakennari. Vilborg Einarsdóttir, meðstofnandi Mentor, lætur af störfum hjá félaginu við þessi tímamót. Vilborg hefur leitt uppbyggingu Mentor frá stofnun félagsins árið 2000, nú síðast sem framkvæmdastjóri InfoMentor á Íslandi og framkvæmdastjóri viðskiptaþróunar. Á starfstíma Vilborgar hefur Mentor vaxið ár frá ári og er náms- og upplýsingakerfi Mentor nú notað af skólum og sveitarfélögum af milljónum notenda í fimm löndum. „Stolt og þakklæti er mér efst í huga við þessi tímamót. Ég er gríðarlega stolt af Mentor og því góða fólki sem ég hef unnið með í gegnum tíðina. Ég er þakklát fyrir þau forréttindi að hafa fengið að taka þátt í að auka árangur í skólastarfi. Nú taka við ný og spennandi verkefni og ég óska nýjum framkvæmdastjóra á Íslandi alls hins besta,“ er haft eftir Vilborgu í tilkynningu. „Þetta er ákaflega spennandi verkefni sem ég er að fara að takast á við. Mentor er leiðandi fyrirtæki í þróun lausna fyrir íslenska skólasamfélagið. Það er áskorun að fá að taka þátt í að gera góða þjónustu enn betri og halda áfram því góða starfi sem þar er,“ er haft eftir Elfu í tilkynningu.
Skóla - og menntamál Vistaskipti Mest lesið „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Viðskipti innlent Ekki króna í þrotabúi Lucky records Viðskipti innlent Innkalla tengiltvinnbíla vegna eldhættu Neytendur Ímyndaðu þér ef yfirmaðurinn væri eins og Trump Atvinnulíf ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Viðskipti innlent „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ Viðskipti innlent Úrvalsdekk hönnuð fyrir Tesla og hátækni rafbíla nú fáanleg á Íslandi Samstarf Greiðsluáskorun Samstarf Þrjú ný í eigendahópinn á BBA//Fjeldco Viðskipti innlent Allt að 35% ódýrari leigubílaferðir með Hopp Samstarf Fleiri fréttir „Það er allt of ódýrt að fara út að borða á Íslandi“ Breytingar við Leifsstöð: Renna komumegin líka og gjaldfrjáls hálftími Ríkið ekki lengur ábyrgt fyrir neinum skuldum Landsvirkjunar Laun hækka umfram verðbólgu Starbucks kemur í stað Kaffitárs „Nú verða allir að líta í eigin barm“ Verðbólga eykst enn Aðeins 50 hafa nýtt sér meðeignarúrræðið: „Þetta eru fimmtíu sem hafa komist í eigið húsnæði“ Kaupverð undir 80 milljónum í 60 prósent kaupsamninga Selur eftir þrjátíu og fimm ára rekstur Vill tvöfalda umsvif Samkeppniseftirlitsins Atvinnuleysi fimm prósent í júní Sviptingar í stjórn Amaroq Félag Höllu fær fimmtíu milljónir í arð Icelandair tapaði fjórum milljörðum en samt með mettekjur Crowberry fjárfestir í Jónsbók Fengið 375 milljónir endurgreiddar vegna Trump-tolla Áfram lækkar íbúðaverð að raunvirði Fleiri færðu lögheimili í ár Fjögurra milljarða hagnaður hjá Emblu Medical Fannar stofnar ráðgjafafyrirtæki Greenfish og samtök evrópskra útgerða kortleggja hrossamakríl Áhrifavaldur losar sig við steinefni „Nauðsynlegt að fá varanlega lausn“ Ekki króna í þrotabúi Lucky records „Þessi framlenging var ekki sjálfgefin“ ESB framlengir sérlausn Íslands vegna losunarheimilda Daníel Þór frá Kviku til Reita Húsnæðislán séu síðasta vígið en það muni falla Valgeir Örn af skjánum til Landsnets Sjá meira