Versta byrjun Óla Jóh síðan að hann féll með Skallagrími fyrir 22 árum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júní 2019 13:00 Ólafur Jóhannesson. Vísir/Villhelm
Valsmenn sitja í neðsta sæti Pepsi Max deildar karla í knattspyrnu eftir 2-1 tap á móti Stjörnunni í sjöundu umferðinni í gær. Valsliðið hefur tapað fimm af fyrstu sjö leikjum sínum og aðeins náð í samtals fjögur stig af 21 mögulegu. Það er óhætt að segja að þessu slæma byrjun skeri sig úr á frábærum þjálfaraferli Ólafs Jóhannessonar. Valsliðið hafði aðeins tapað samanlagt sjö leikjum í fyrstu sjö umferðunum á fyrstu fjórum tímabilum Ólafs á Hlíðarenda frá 2015 til 2018. Þá tapaði FH-liðið aðeins samanlagt þremur leikjum (af 35) í fyrstu sjö umferðunum á fimm tímabilum Ólafs með FH-liðið frá 2003 til 2007. Þetta er fimmtánda leiktíð Ólafs Jóhannessonar með lið í efstu deild á Íslandi og hann hefur aðeins einu sinni áður verið með færri stig eftir fyrstu sjö leikina. Sumarið 1997 þjálfaði hann nýliða Skallagríms í Borgarnesi. Liðið vann fyrsta leikinn sinn en tapaði svo sex í röð og var því aðeins með þrjú stig eftir sjö leiki. Skallargrímsliðið féll síðan úr deildinni um haustið. Valsliðið fær nú þrettán daga til að koma sér aftur upp á tærnar og í betra form. Það er öllum ljóst að Valsmenn eru ekki með mannskap til að sitja í neðsta sæti Pepsi Max deildar karla. Hér fyrir neðan má sjá verstu byrjanir Ólafs Jóhannessonar með lið í efstu deild.Verstu byrjanir liða liða Ólafs Jóhannessonar(Stig í fyrstu sjö leikjunum í efstu deild) 3 stig - Skallagrímur 1997 (9. sæti eftir 7 umferðir) 4 stig - Valur 2009 (12. sæti) 5 stig - FH 1991 (8. sæti) 6 stig - FH 1995 (9. sæti) 9 stig - FH 1990 (6. sæti) 10 stig - Valur 2016 (7. sæti) 11 stig - FH 1989 (4. sæti) 11 stig - FH 2003 (3. sæti) 11 stig - Valur 2015 (5. sæti) 12 stig - FH 2004 (2. sæti) 12 stig - Valur 2018 (2. sæti) 16 stig - Valur 2017 (1. sæti) 19 stig - FH 2006 (1. sæti) 19 stig - FH 2007 (1. sæti) 21 stig - FH 2005 (1. sæti)Tapleikir í fyrstu sjö umferðunum hjá liðum Ólafs Jóhannessonar í efstu deild: Sumarið 2019 - 5 tapleikir í 7 leikjum (71% leikja) Árin 2015-2018 - 7 tapleikir í 28 leikjum (25% leikja) Árin 2003-2007 - 3 tapleikir í 35 leikjum (9% leikja)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira