Óli Jóh: „Hef ekki hugmynd hvenær Hannes tognaði“ Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 15. júní 2019 20:34 Hannes Þór Halldórsson spilaði allan leikinn við Tyrki þrátt fyrir að hafa meiðst í upphitun. vísir/daníel
Ólafur Jóhannesson segist ekki vita hvenær Hannes Þór Halldórsson hafi tognað, en Hannes var ekki með Val gegn ÍBV í kvöld heldur er hann á Ítalíu. Fjöldi landsliðsmanna er um þessar stundir við Como vatn á Ítalíu þar sem Gylfi Þór Sigurðsson og Alexandra Helga Ívarsdóttir ganga í það heilaga. Hannes var á meðal þeirra sem fengu boð í brúðkaupið en ætlaði ekki að mæta þar sem hann átti leik með Val í Pepsi Max deildinni. Í vikunni bárust hins vegar fréttir af því að Hannes sagðist hafa meiðst í upphitun fyrir leik Íslands og Tyrklands á þriðjudag. Landsliðsmarkvörðurinn sagðist því ekki geta spilað leikinn og að Ólafur hafi gefið honum frí og grænt ljós á að fara til Ítalíu og vera viðstaddur brúðkaupið. Eftir 5-1 sigur Vals á ÍBV í kvöld var Ólafur spurður út í málið. „Ég hef ekki hugmynd hvenær hann tognaði,“ sagði Ólafur við Víking Goða Sigurðarson eftir leikinn og var ekki spenntur fyrir því að ræða þetta mál. „Ég þekki ekki hvernig svona mál ganga fyrir sig því miður,“ sagði Ólafur spurður út í það hvort það væri ekki betra að jafna sig á meiðslunum heima á Íslandi frekar en að fara í frí.
Pepsi Max-deild karla Tengdar fréttir Hannes meiddur og missir af leiknum við ÍBV Hannes Þór Halldórsson er meiddur og verður ekki með Val gegn ÍBV í Pepsi Max deild karla á laugardag. Þess í stað heldur hann út til Ítalíu og verður viðstaddur brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar. 13. júní 2019 16:18 Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - ÍBV 5-1 | Valsmenn spyrna sér af botninum Þægilegur sigur hjá Valsmönnum í dag. 15. júní 2019 19:15 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira
Hannes meiddur og missir af leiknum við ÍBV Hannes Þór Halldórsson er meiddur og verður ekki með Val gegn ÍBV í Pepsi Max deild karla á laugardag. Þess í stað heldur hann út til Ítalíu og verður viðstaddur brúðkaup Gylfa Þórs Sigurðssonar. 13. júní 2019 16:18
Umfjöllun, viðtöl og einkunnir: Valur - ÍBV 5-1 | Valsmenn spyrna sér af botninum Þægilegur sigur hjá Valsmönnum í dag. 15. júní 2019 19:15