Íslenski boltinn

Kwame lánaður í Fossvoginn

Anton Ingi Leifsson skrifar
Kwame Quee fékk lítið að spila með Blikum og er farinn á lán
Kwame Quee fékk lítið að spila með Blikum og er farinn á lán vísir/vilhelm
Víkingur hefur fengið liðsstyrk í Pepsi Max-deild karla en liðið hefur fengið Kwame Quee að láni frá Breiðablik.

Kwame gekk í raðir Breiðabliks frá Víkingi úr Ólafsvík fyrir síðustu leiktíð en hefur ekki byrjað einn leik hjá Breiðablik í Pepsi Max-deildinni í sumar.







Hann hefur einugis komið við sögu í einum leik og þá kom hann inn á sem varamaður í tapi gegn Skagamönnum á Kópavogsvelli.

Hann skoraði hins vegar er hann byrjaði gegn HK í Mjólkurbikarnum en hefur nú verið lánaður í Fossvoginn.

Víkingur er í níunda sæti Pepsi Max-deildarinnar og er komið í undanúrslit Mjólkurbikarsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×