Pepsi Max-mörkin: Túfa þarf að bjóða Jóhanni Gunnari í mat Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 9. júlí 2019 08:30 Boltinn virðist ekki hafa farið allur yfir línuna s2 sport
Srdjan Tufegdzic þarf að standa við stóru orðin og bjóða Jóhanni Gunnari Guðmundssyni í mat því Sigurður Bjartur Hallsson kom boltanum ekki inn fyrir marklínuna í leik Stjörnunnar og Grindavíkur. Stjarnan og Grindavík gerðu markalaust jafntefli í 12. umferð Pepsi Max deildar karla á föstudaginn. Í seinni hálfleik átti Sigurður Bjartur skalla að marki sem Haraldur Björnsson varði. Vafi var þó um hvort boltinn hafi náð að fara allur yfir línuna. Þorvaldur Árnason dæmdi upphaflega mark en eftir fundarhöld með Jóhanni Gunnari aðstoðardómara sneri Þorvaldur þeim dómi við. „Við fengum dauðafæri til að vinna þennan leik. Síðan er mark sem var dæmt af sem verður að sjá betur. Ef Jóhann Gunnar hefur rétt fyrir sér þá ætla ég bara að bjóða honum í mat,“ sagði Túfa, þjálfari Grindavíkur, eftir leik. Hörður Magnússon og félagar í Pepsi Max mörkunum skoðuðu þetta atvik aftur og aftur og komust að lokum að þeirri niðurstöðu, með hjálp teiknitölvunnar sem hefur verið kölluð varsjá þáttarins, að boltinn hafi aldrei farið allur yfir línuna. Grindavík átti því ekki að fá mark við þetta tilefni og aðstoðardómarinn hafði rétt fyrir sér. Þá er bara að sjá hvort Túfa standi við orðin og bjóði Jóhanni í mat.Klippa: Pepsi Max-mörkin: Ekki mark hjá Grindavík
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira