Vigdís var enn forseti Íslands þegar KR vann síðast átta deildarleiki í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. júlí 2019 12:30 Óskar Örn Hauksson fer fyrir toppliði KR í sumar. vísir/bára
KR-liðið vann áttunda deildarleikinn sinn í röð í Pepsi Max deild karla út í Vestmannaeyjum um helgina og Vesturbæjarliðið er nú komið með sjö stiga forskot á toppnum. Það þarf að fara langt aftur til að finna aðra eins sigurgöngu hjá KR. KR-ingar eru nefnilega á lengstu sigurgöngu sinni í efstu deild í 23 ár eða síðan sumarið 1996 þegar liðið blómstraði undir stjórn Lúkasar Kostic. KR vann átta leiki í röð í fyrri umferðinni sumarið 1996 en áttundi sigurinn í röð kom í toppslag á móti ÍA á KR-vellinum. Ríkharður Daðason skoraði eina mark leiksins. Guðmundur Benediktsson fór mikinn í þessari sigurgöngu KR í fyrri umferðinni 1996 og var með 7 mörk og 5 stoðsendingar í þessum átta sigurleikjum í röð. Guðmundur meiddist á hné í þessum áttunda sigurleik KR í röð. Hann missti mikið úr og KR-liðið sá á endanum eftir Íslandsmeistaratitlinum til Skagamanna eftir hreinan úrslitaleik liðanna í lokaumferðinni.Vigdís Finnbogadóttir forseti í ljúfum dansi á Þorrablóti í London 20. febrúar 1982. Fréttablaðið/GVAVigdís Finnbogadóttir var þarna enn forseti Íslands en Ólafur Ragnar Grímsson var settur í embætti 1. ágúst 1996. Ólafur Ragnar var kjörinn forseti með 41,4 prósent atkvæðum 29. júní 1996. KR-ingar hafa aldrei unnið níu deildarleiki í röð í nútíma fótbolta eða síðan að fjölgað var í tíu lið í deildinni árið 1977. KR-liðið á því metið eitt takist liðinu að vinna Stjörnuna í næsta leik sínum. Hér fyrir neðan má sjá listann yfir lengstu sigurgöngur KR-liðsins í deildinni undanfarin fjörutíu ár.Lengstu sigurgöngur KR í nútíma fótbolta (1977-2019): 8 - 1996 (Lúkas Kostic þjálfaði liðið) 8 - 2019 (Rúnar Kristinsson) 7 - 1998 (Atli Eðvaldsson) 7 - 1999 (Atli Eðvaldsson) 7 - 2013 (Rúnar Kristinsson) 6 - 2009 (Logi Ólafsson) 6 - 2010 (Rúnar Kristinsson)
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira