Pedersen: Frábært að byrja með marki á heimavelli Ástrós Ýr Eggertsdóttir skrifar 4. júlí 2019 20:34 Patrick Pedersen skoraði 17 mörk í 21 leik fyrir Val síðasta sumar. Hann er strax byrjaður aftur. vísir/bára
Patrick Pedersen var ekki lengi að finna gamla takta í Pepsi Max deild karla. Hann skoraði mark strax í fyrsta leik með Val þegar Íslandsmeistararnir unnu KA á heimavelli sínum í kvöld. „Það er frábært að vera kominn til baka. Að fá heimaleik í fyrsta leiknum og skora mark, ná í þrjú stig, ég er mjög ánægður,“ sagði Patrick Pedersen eftir leikinn. Pedersen skoraði fyrsta mark leiksins undir lok fyrri hálfleiks. Hann átti svo þátt í báðum mörkum Vals í seinni hálfleik, Valur vann leikinn 3-1. Það var allt annað að sjá til Valsliðsins í dag, sóknarleikurinn var frábær og Daninn kom inn í liðið eins og hann hefði aldrei farið. „Ég þekki strákana og þeir þekkja mig vel og mína kosti. Það er mjög auðvelt að passa inn í þetta lið og ég er mjög ánægður með að vera kominn til baka.“ Framherjinn öflugi meiddist aðeins í seinni hálfleik og var svo tekinn af velli stuttu síðar. Hann sagði þó að það væri í lagi með sig. „Ég fékk smá krampa, ég hef ekkert spilað í einn og hálfan mánuð, en ég er í lagi.“ Það má því reikna með danska framherjanum á sínum stað í framlínu Vals þegar Íslandsmeistararnir mæta slóvensku meisturunum í Maribor í forkeppni Meistaradeildar Evrópu í næstu viku en Pedersen sagðist ekki vita betur en að hann væri gjaldgengur með Val í Meistaradeildinni.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira