Liverpool sagt vera eitt af liðunum á eftir miðjumanni Real Madrid Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 4. júlí 2019 08:15 Dani Ceballos vann Evrópumeistaratitil með spænska 21 árs landsliðinu á dögunum. Getty/Denis Doyle
Þrjú ensk úrvalsdeildarfélög vilja öll fá til síns spænska miðjumanninn Dani Ceballos samkvæmt fréttum frá Spáni. Spænska stórblaðið Marca segir að Liverpool, Tottenham og Arsenal hafi öll áhuga á hinum 22 ára gamla unglingalandsliðsmanni Spánverja. Dani Ceballos var valinn í úrvalslið mótsins fyrr í sumar þegar Spánverjar urðu Evrópumeistarar hjá 21 árs landsliðum eftir 2-1 sigur á Þýskalandi í úrslitaleik.There are three Premier League teams interested in Real Madrid midfielder Dani Ceballos. Gossip: https://t.co/zhwhEYPaE6pic.twitter.com/fYBQdgf0OR — BBC Sport (@BBCSport) July 4, 2019Dani Ceballos fékk aukafrí eftir mótið og fer því ekki með Real Madrid liðinu í keppnisferðalag til Kanada. Marca segir að Real Madrid hafi líka fengið fyrirspurnir um leikmanninn frá Ítalíu og Þýskalandi en að framtíð hans sé í Englandi. Blaðamaður Marca veltir fyrir sér hvort gott samkomulag á milli Real Madrid og Tottenham hafi hér eitthvað að segja og þá er vitað af áhuga Real á danska miðjumanninum Christian Eriksen. Dani Ceballos þykir líka henta leikstíl Arsenal mjög vel og það gæti því verið góður kostur fyrir Unai Emery að fá hann á Emirates.Klopp quiere a Ceballos en el Liverpool https://t.co/ed5SJNRJwFpic.twitter.com/xKsE9h1YbB — MARCA (@marca) July 3, 2019Marca segir að mesta leyndin hafi verið yfir áhuga Liverpool en að áhugi Evrópumeistaranna hafi aukist mikið síðustu vikurnar. Jürgen Klopp, knattspyrnustjóri Liverpool, á víst að sjá í Ceballos leikmanninn sem hann var að leita að þegar Liverpool keypti Naby Keita. Liverpool tekur aftur á móti ekki í mál að fá leikmanninn á láni eða að Real Madrid hafi forkaupsrétt á honum til baka.
Enski boltinn Spænski boltinn Mest lesið Gómuð við gróft svindl í Berlín Sport Verður sjö á móti sex sókn úr sögunni í handbolta? Handbolti Gylfi klár og mun spila stórt hlutverk í kvöld Fótbolti Bakgarðsáskorunin: Tók óvænt þátt eftir að mamma skráði hana Sport Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Leikurinn í kvöld klárast rétt fyrir miðnætti og því dræm mæting Sport Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Enski boltinn Arnar um Aron Einar: „Ekkert persónulegt“ Fótbolti Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Íslenski boltinn Utan vallar: Sögufræg vinátta lögð til hliðar í stutta stund með ógn úr austri til staðar Fótbolti Fleiri fréttir Mun mæta fyrir dóm eftir ofsaakstur Óvæntur meðlimur á liðsmynd Manchester United Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Sjá meira