Stigin hjá liðunum í sigurgöngu KR-inga: Með fimmtán fleiri stig en FH Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 3. júlí 2019 12:30 Pálmi Rafn Pálmason í leiknum á móti Blikum. Vísir/Bára
KR-ingar eru á lengstu sigurgöngu sinni í úrvalsdeildinni í fótbolta í sex ár og eru orðnir langsigurstranglegsta liðið í Pepsi Max deildinni í sumar. KR náði fjögurra stiga forystu með sigrinum á Blikum á Meistaravöllum á mánudagskvöldið. Það var sjöundi sigurleikur liðsins í röð í deildinni og níundi sigurinn í röð í öllum keppnum. KR var „aðeins“ með fimm stig af tólf mögulegum og í sjötta sæti eftir tap á móti Grindavík í fjórðu umferð. KR-ingar hafa hins vegar ekki tapað einu einasta stigi síðan. Það er fróðlegt að skoða stig liðanna á þessar 47 daga sigurgöngu KR-liðsins. KR hefur á þeim tíma unnið HK (3-2), Víking (1-0), KA (1-0), ÍA (3-1), Val (3-2), FH (2-1) og Breiðablik (2-0). Þar kemur meðal annars fram að Valsmenn hafa fengið þremur stigum meira en FH-ingar en FH-liðið á reyndar leik inni á Val. FH er aðeins með tíunda besta árangurinn í deildinni á meðan KR-liðið hefur verið á þessari sigurgöngu sinni. KR hefur alls fengið fimmtán stigum meira en FH á þessum tíma en KR vann 2-1 sigur á FH í innbyrðis leik liðanna í Kaplakrika á dögunum. Næstir KR-ingum eru Blikar með níu stigum minna en KR en KR vann einmitt 2-0 sigur á Blikum í toppslagnum. Vesturbæingar eiga síðan næstu leiki á móti ÍBV, Stjörnunni, Fylki og Grindavík en KR-ingum tókst ekki að vinna þrjú þeirra í fyrri umferðinni (Stjarnan, Fylki og Grindavík).Stig liða í Pepsi Max deild karla í sigurgöngu KR: 1. KR 21 stig 2. Breiðablik 12 stig 3. Stjarnan 10 stig 4. Fylkir 10 stig 5. Valur 9 sitg 6. KA 9 stig 7. Víkingur 9 stig 8. ÍA 7 stig 9. Grindavík 6 stig 10. FH 6 stig 11. HK 4 stig 12. ÍBV 4 stig
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Segja starf Elísabetar hanga á bláþræði en leikmenn lofa hana Fótbolti Einkunnir Íslands: Þrjár stóðu upp úr í veislunni í Dalnum Fótbolti Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Íslenski boltinn Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ Handbolti Sungu jólalag hástöfum og allt klárt fyrir HM-einvígin Fótbolti „Mættum til leiks í seinni hálfleik“ Sport Gáfu ekki upp hundraða milljóna greiðslu til Infantino Fótbolti Aftur ráðast HM-örlög Íslands gegn Portúgölum Fótbolti FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Handbolti Norsku meistararnir magnaðir gegn Bayern Fótbolti Fleiri fréttir Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Uppgjörið: Breiðablik - Keflavík 3-1 | Breiðablik vann í nepjunni í Kópavoginum Uppgjörið: Víkingur-ÍA 2-2 | Skagamenn sóttu stig í Fossvoginn Sjáðu mörkin sem björguðu FH, felldu ÍBV og tryggðu KR tugi milljóna „Í fyrsta sinn sem við vinnum ósanngjarnt“ Uppgjörið: Fram - KR 1-2 | KR styrkti stöðu sína í öðru sæti „Við ætlum að vinna rest“ Linta eftir fallið: „Enginn bjóst við þessu“ ,,Menn þurfa að bera meiri virðingu fyrir Stjörnunni en þetta” „Orðið algjört vígi að koma hérna“ Uppgjörið: Þór - ÍBV 1-0 | Felldu Eyjamenn og halda í vonina Stjarnan - KA 0-3 | Halda sér ofan fallsvæðis Valur - FH 3-5 | Öruggir eftir skrautlegan sigur „Reynum að kveikja í hræðslu hjá þeim“ „Það er aldrei lognmolla í kringum Óskar“ Tumi Fannar mættur á Hlíðarenda Jóhann Berg leggur skóna á hilluna Tarik framlengir við Víking Kveðjubréf frá Kidda Steindórs Leggur skóna á hilluna eftir tímabilið Fékk að fara á fyrstu A-landsliðsæfinguna á afmælisdaginn Stóri munurinn á feigum og ófeigum: „Hvað er planið?“ Mikið sem þarf að hugsa um áður en fyrirkomulagi Íslandsmótsins sé breytt Selfoss missir mikið efni Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Sjá meira