FH fær mark frá Lennon á hverjum 50 mínútum Anton Ingi Leifsson skrifar 1. júlí 2019 06:00 Lennon fagnar marki sínu gegn Val. vísir/bára
Steven Lennon hefur komið vel inn í FH-liðið í bæði Pepsi Max-deild karla og Mjólkurbikarnum eftir meiðslin sem hann barðist við í upphafi móts. Skotinn var á meiðslalistanum í fyrstu leikjum FH og Hafnfirðingum gekk ekki sem skildi. Það var ljóst að liðið saknaði Skotans sem hefur verið magnaður síðan. Lennon hefur spilað sex leiki FH í Pepsi Max-deild karla í sumar og skorað þrjú mörk. Hann skoraði mikilvægt mark gegn Val, jöfnunarmarkið gegn Stjörnunni og sárabótarmark gegn KR. Í Mjólkurbikarnum hefur hann svo skorað fjögur mörk. Eitt mark í 16-liða úrslitunum gegn ÍA og svo þrjú mörk í 7-1 burstinu gegn Grindavík í 8-liða úrslitunum á fimmtudagskvöldið. Leifur Grímsson, sparkspekingur og tölfræðiséní, grennslaðist fyrir um þetta og í tölfræði Leifs kemur fram að Lennon skorar mark á hverjum 50 mínútum sem hann spilar.League and cup: 349 min played, 7 goals = Goal every 50 min — Leifur Grímsson (@lgrims) June 30, 2019 Hann hefur leikið 349 mínútur í bæði deild og bikar í sumar og þessar 349 mínútur hafa skilað sjö mörk. Magnaður Skotinn. Það er svo spurning hvort að hann verði á skotskónum í kvöld er FH sækir Grindavík heim í Pepsi Max-deild karla. Leikur Grindavíkur og FH sem og aðrir leikir umferðarinnar verða gerðir upp í Pepsi Max-mörkunum sem hefjast klukkan 21.15, strax á eftir stórleik KR og Breiðabliks.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Fjörið og fegurðin var í fyrri hálfleik Fótbolti Lögreglumenn dulbjuggu sig sem lukkudýr HM fyrir fíkniefnaaðgerð Fótbolti Beckham fékk sína stjörnu á götuna frægu í Hollywood Fótbolti Alisson Becker missti af leikjum Liverpool til að spara sig fyrir HM Enski boltinn Harden handtekinn fyrir ólöglegan vopnaburð Körfubolti Siggi Raggi með NSÍ á toppnum Fótbolti „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ Íslenski boltinn Uppgjör: FH komið á toppinn Fótbolti Katarmenn stálu stiginu með marki í uppbótartíma Fótbolti Uppgjörið: Valur – Þór/KA 0-0 | Markalaust í bragðdaufum leik á Hlíðarenda Fótbolti Fleiri fréttir „Búnar að vera svolítið litlar og linar“ „Ennþá er boltinn ekki að fara inn í markið“ HK-konur tvöfölduðu markaskor sumarsins í stórsigri á Stólunum Fylkismenn fengu hjálp á síðustu stundu og unnu svo í framlengingu Á sársaukafullar minningar af HM Lárus Orri: „Breytast í eitthvað allt annað og liggja út um allan völl“ Aron Elís: „ Ég ætla ekki að fara jinxa neitt“ Breiðablik og Víkingur mætast í undanúrslitum Uppgjör: ÍA – Víkingur R. 1-2 | Ævintýrasumar Óskars og Víkinga heldur áfram Þróttarar með þriggja stiga forskot á toppnum Jökull rekinn frá Stjörnunni Blikarnir brunuðu í undanúrslit bikarsins Afhjúpa minningarstein Steina Gísla Bestu-deildarpar á von á barni saman Magnús Már: Markmiðið að sigra næsta borð Víkingar kynna miðamál fyrir stærsta leik sumarsins Styðja við bakið á Ingvari í hans baráttu: „Alltaf að fara gera þetta“ Vill standa sig fyrir Ingvar vin sinn Ögmundur í Víking og Ingvar hlaut lengri samning Jason Daði skoðar sig um á Skaganum Landsliðið sendi kveðju á Ingvar Býst við skömmum frá KSÍ Vestri valtaði yfir Völsung Sigurður Egill með tvennu í sigri Þróttar Aron Einar heim í Þorpið? Sara Björk tekur einnig að sér afreksþjálfun hjá Haukum Höggin dynja á Þórsurum: Norðmaðurinn farinn heim Bjóða Söru velkomna heim með gæsahúðarmyndbandi Á völlinn eftir þrjú slit, fjögur ár og fimm aðgerðir: „Ólýsanlegt“ Sara Björk snýr heim í Hauka Sjá meira