Kári Árna vann 78 prósent návíganna í fyrsta leiknum með Víkingum Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. júlí 2019 23:00 Kári og Sölvi Geir Ottesen eru sameinaðir hjá Víkingi að nýju. vísir/vilhelm
Kári Árnason kom vel út úr tölfræðinni í fyrsta leik sínum með Víkingum í Pepsi Max deild karla en íslenski landsliðsmiðvörðurinn spilaði sinn fyrsta leik á Íslandi í fimmtán ár þegar Víkingar sóttu FH-inga heim á mánudagskvöldið. Kári og félagar þurftu reyndar á endanum að sætta sig við ósanngjarnt eins marks tap í leiknum en eina mark FH-inga kom úr umdeildri aukaspyrnu undir lok leiksins. Intstat hefur nú greint þennan fyrsta leik Kára í íslensku deildinni síðan árið 2004. Það sem vekur strax athygli er gott gengi Kára í návígum í leiknum. Kári vann 21 af 27 návígum sem hann fór á Kaplakrikavellinum sem gerir 78 prósent árangur. Hann vann 88 prósent návíga á jörðinni (14 af 16) og 7 af 11 skallaeinvígum (64%). Kári vann líka 4 af 5 tæklingum sem hann fór í. Kári var enn betri í seinni hálfleiknum þegar hann vann 82 prósent návíganna sinna eða 14 af 17. Þá vann hann 75 prósent af skallaeinvígunum sínum eftir að hafa unnið aðeins 1 af 3 skallaeinvígum í fyrri hálfleiknum (33%). Kári vann boltann alls sextán sinnum fyrir Víkingsliðið og 49 af 62 sendingum hans heppnuðust sem gera 79 prósent árangur í sendingum. Kári reyndi fimm sinnum einleik í leiknum og fjórum sinnum heppnaðist það hjá honum. Víkingar voru líka ólmir í að koma boltanum á nýja manninn í liðinu því Kári fékk boltann alls 48 sinnum í leiknum. Það var aðeins Ágúst Eðvald Hlynsson sem fékk hann oftar Víkingsliðinu eða 49 sinnum. Þar munaði því bara einu skipti á þeim félögum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira