Lítur loksins vel út eftir tveggja vikna þrautagöngu Stefán Ó. Jónsson skrifar 10. júlí 2019 12:00 Aníta Katrín er á þriðja aldursári. Hún fór ásamt foreldrum sínum á Efstadal um miðjan júní þar sem hún borðaði ís og klappaði kálfum. Undanfarnar tvær vikur hefur hún legið þungt haldin á Landspítalnum vegna nýrnabilunar af völdum HUS. Áslaug Fjóla Magnúsdóttir
Foreldrar Anítu Katrínar vona að hún komist heim til sín fyrir þriggja ára afmælisdaginn sinn í lok mánaðar. Aníta er eitt þeirra barna sem veiktist alvarlega eftir að hafa smitast af E. coli-bakteríu á Efstadal II í Bláskógabyggð. Hún hefur legið þungt haldin á Landspítalanum með nýrnabilun undanfarnar tvær vikur þar sem hún hefur sætt margvíslegum rannsóknum og inngripum. Botninum hefur þó verið náð, að sögn föður hennar, sem segir að staðan sé loksins farin að líta vel út eftir þrautagöngu síðustu vikna. Aníta Katrín heimsótti Bláskógabyggð ásamt foreldrum sínum, þeim Áslaugu Fjólu Magnúsdóttur og Ægi Þorleifssyni, um miðjan júnímánuð. Þau dvöldu alls tvær vikur í uppsveitum Árnessýslu í fellihýsi sínu og heilsaðist öllum vel meðan á ferðalaginu stóð. Fjölskyldan heimsótti Efstadal alls þrisvar sinnum í ferðinni, enda þar margt að sjá og gera. Þar fengu þau sér meðal annars ís og klöppuðu húsdýrum. Eins og Landlæknir greindi frá í morgun er það einmitt ísinn sem talinn er vera líklegasta smitleið E. coli bakteríunnar á Efstadal.Að sögn Ægis, föður Anítu, var það ekki fyrr en þau komu aftur heim til borgarinnar sem stúlkan tók að sýna einkenni þess að ekki væri allt í lagi. Þau hafi leitað á Læknavaktina þann 24. júní þar sem Aníta var í fyrstu greind með magakveisu auk þess sem foreldrarnir voru hvattir til að fara með stúlkuna á bráðamóttökuna ef ástand hennar versnaði.Á meðal þess sem boðið hefur verið upp á á Efstadal er að klappa kálfum en síðan E. coli-bakterían kom þar upp hefur það ekki verið í boði.Vísir/MHHGetur valdið óafturkræfum skaða Þau þurftu ekki að bíða lengi eftir að það gerðist. Strax um nóttina jukust magakramparnir sem urðu til þess að Aníta kastaði upp um morguninn. Foreldrarnir óku henni því á bráðamóttöku barna þar sem hún undirgekkst fyrstu rannsóknirnar. Þá hafi hún jafnframt fengið blóðugar hægðir sem sendar voru í ræktun, um leið og Aníta var sjálf send í einangrun. Ástand Anítu versnaði síðan hratt fyrstu helgina á spítalanum. Hún fékk heiftarlega magakrampa og tók að kasta upp galli. Hún varð náföl og reyndist hún vera kominn með háan hita. „Það var því tekin blóðprufa sem gaf til kynna að öll nýrnagildin voru komin upp um leið og blóðgildin hrundu,“ segir Ægir. Nýru Anítu höfðu hætt að starfa og hún því drifin á gjörgæslu. Það var þá sem þau fengu loks staðfestingu á því að veikindi hennar mætti rekja til eitrunar af völdum E. coli sýkingar. Umrædd sýking, sem kallast HUS, er alvarlegur fylgikvilli sem þó hrellir ekki alla þá sem smitast vegna E. coli. Helstu einkennin eru nýrnabilun og fækkun á blóðflögum, sem getur leitt til blæðinga. HUS getur valdið óafturkræfum skaða á nýrum og jafnvel dregið sjúklinginn til dauða.Mikill fjöldi ferðamanna heimsækir Efstadal, enda er þar margt að sjá og gera.Vísir/mhhHreinlæti ábótavant á Efstadal Ægir segir að nú virðist þó vera sem að erfiðasti hjallinn sé úr vegi. Þrátt fyrir að töluvert sé ennþá í land, til að mynda sé ekki komin endanlega niðurstaða um hvort nýrun muni aftur ná fullri virkni, verði ekki annað séð en að botninum sé náð. Þá sé aðeins hægt að spyrna sér upp. Hann segir fjölskylduna vera gríðarlega þakkláta starfsfólki Barnaspítalans sem hafi gert allt sem í þeirra valdi stóð til að bjarga Anítu. Auk þess séu þau auðmjúk fyrir alla umhyggjuna og hlýhuginn sem fjölskyldan hafi fengið á síðustu vikum. Á sama tíma setji þau spurningamerki við aðstöðuna í Efstadal. Fram til 4. júlí, þegar sóttvarnalæknir og Matvælastofnun gripu til ráðstafana á bænum, hafi fólk haft greiðan aðgang að nokkrum kálfum sem voru saman í lítilli stíu. Þar hafi þeir getað velt sér upp úr óhreinindum, með tilheyrandi smithættu, og börnum boðist að klappa þeim. Við þær aðstæður þurfi þó að huga betur að hreinlæti en gert var á þeim tíma sem þau voru á Efstadal. Til að mynda séu fá salerni á staðnum miðað við þann mikla ferðamannafjölda sem þangað kemur. Það sé því fagnaðarefni að hreinlætismálin hafi verið tekin í gegn á bænum eftir umfjöllun síðustu daga. Aníta mun fagna þriggja ára afmæli sínu í lok júlí og segir Ægir að þau voni að hægt verði að fagna því heima hjá sér. Blóðmagnið leyfi það þó ekki þessa stundina og því sé „smá verkefni eftir,“ og erfitt sé að áætla hvað bataferlið mun taka langan tíma. „Við vonum því að það verði engin bakslög,“ segir Ægir og bætir við. „Þetta lítur þó vel út eftir tveggja vikna þrautagöngu.“ Færslu Áslaugar, móður Anítu, um veikindin má sjá hér að neðan.
Bláskógabyggð Dýr E.coli á Efstadal II Heilbrigðismál Tengdar fréttir Ís í Efstadal það eina sem börnin níu eiga sameiginlegt Sóttvarnalæknir og aðrir opinberir aðilar sem haft hafa til rannsóknar e.coli smit sem rekja má til ferðaþjónustubæjarins Efstadals II í Bláskógabyggð vilja árétta að ekki sé hægt að fullyrða að þau níu börn sem smituðust af e.coli á bænum hafi sýkst af umgengni við kálfa sem þar voru í stíu og hægt var að klappa. 10. júlí 2019 11:15 Uppspretta E. coli-hrinunnar á Efstadal II Landlæknir telur ljóst að níu af þeim 10 börnum sem veikst hafa með sýkingu af völdum E. coli bakteríu hafi gert það á ferðaþjónustubænum Efstadal II í Bláskógabyggð fyrir 10 dögum til þremur vikum síðan. 9. júlí 2019 13:20 Vill helst skríða undir sæng og fara að gráta Eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Efstadals tvö í Bláskógabyggð harmar e.coli-smit sem kom upp þar. 9. júlí 2019 18:30 Mest lesið Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Innlent Lögðu andstæðingunum vafasöm orð í munn með gervigreind Erlent Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Innlent Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Innlent Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Innlent Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Innlent Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Innlent Glaumgosinn sem tók við málaliðaveldi föður síns Erlent Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Innlent Ítalski baróninn á ekki vatnið Innlent Fleiri fréttir Hellisheiði lokuð í báðar áttir vegna umferðarslyss Vilja kanna fækkun útibúa Borgarbókasafnsins Verklok í Þverholti færast frá sumri til áramóta Vísar jöfnum höndum til mikilvægi samtals og almennra hegningarlaga Lögreglan hafði afskipti af tugum ökumanna Ítalski baróninn á ekki vatnið Tvö umferðarslys og þrír fluttir á sjúkrahús Ómar lagði úrskurðarnefnd vegna tölvupóstsins óvenjulega Skúmaskotum Mjóddarinnar fækkað í forvarnarskyni Segir flugeldasöluna ekki í hættu Tilkynning um kæru óskýr og Bandero fer ekki fet Mál sonar þingmannsins komið til héraðssaksóknara „Við munum tryggja það að hún muni ekki gleymast“ Hættir við að aflétta ráðningarbanni vegna manndráps Bein útsending: Gera samfélagsmiðlar okkur hamingjusöm? Vill bæta eftirlit með lyfjagjöfum aldraðra Fjarvera Þorgerðar á pari við forvera hennar Gríðarleg sjúkdómsbyrði meðal niðurstaðna Eftirsjá að Eggerti: „Lífið heldur áfram“ Nauðgaði fatlaðri konu og gripinn í Leifsstöð Dóttir Kolbrúnar skrifar undir harða viðvörun um leigubremsuna Árásir hófust áður en gallarnir voru lagfærðir Margrét Löf vill komast í opið fangelsi Telur rök Háskólans á Akureyri ekki haldbær Taka strætóstöðina í Mjódd í gegn eftir ofbeldisatvik Breytingar í Mjódd til að bregðast við ofbeldi Þarf að leita annað eftir að hafa ekki fengið fangaklefa Segja upp 34 áskriftum og opna stæðin almenningi Vantar sex milljónir til að halda Edduna Guðmundur Ingi lét fjarlægja blett af fæti Sjá meira
Ís í Efstadal það eina sem börnin níu eiga sameiginlegt Sóttvarnalæknir og aðrir opinberir aðilar sem haft hafa til rannsóknar e.coli smit sem rekja má til ferðaþjónustubæjarins Efstadals II í Bláskógabyggð vilja árétta að ekki sé hægt að fullyrða að þau níu börn sem smituðust af e.coli á bænum hafi sýkst af umgengni við kálfa sem þar voru í stíu og hægt var að klappa. 10. júlí 2019 11:15
Uppspretta E. coli-hrinunnar á Efstadal II Landlæknir telur ljóst að níu af þeim 10 börnum sem veikst hafa með sýkingu af völdum E. coli bakteríu hafi gert það á ferðaþjónustubænum Efstadal II í Bláskógabyggð fyrir 10 dögum til þremur vikum síðan. 9. júlí 2019 13:20
Vill helst skríða undir sæng og fara að gráta Eigandi ferðaþjónustufyrirtækisins Efstadals tvö í Bláskógabyggð harmar e.coli-smit sem kom upp þar. 9. júlí 2019 18:30