Rúnar og Bjarni eiga saman 9 af 13 lengstu sigurgöngum KR Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. júlí 2019 12:00 KR-ingar fagna marki á móti KA í Pepsi Max deild karla í sumar. Vísir/Bára
KR hefur aldrei áður unnið átta leiki í röð í tólf liða efstu deild en nöfn þjálfaranna Rúnars Kristinssonar og Bjarna Guðjónssonar eru afar áberandi á listanum yfir lengstu sigurgöngur félagsins frá því að deildin innihélt fyrst tólf lið sumarið 2008. KR-ingar hafa unnið átta leiki í röð í Pepsi Max deild karla og eru komnir með sjö stiga forskot á toppi deildarinnar. Þetta er lengsta sigurganga KR í deildinni í 23 ár eða síðan í fyrri umferðinni 1996 þegar Vesturbæjarliðið vann einnig átta deildarleiki í röð. KR hefur þrisvar sinnum unnið sjö deildarleiki í röð í nútíma fótbolta (frá 1977) þar af einu sinni í tólf liða deild. Hin tvö skiptin voru undir stjórn Atla Eðvaldssonar 1998 og 1999. Rúnar Kristinsson og Bjarni Guðjónsson vinna nú saman hjá KR, Rúnar er aðalþjálfari og Bjarni er aðstoðarþjálfari. Þeir höfðu áður þjálfað báðir KR-liðið einir. Þegar við skoðum þrettán lengstu sigurgöngur KR-inga í tólf liða efstu deild þá eru nöfn Rúnars og Bjarna áberandi. Rúnar er reyndar í nokkrum sérflokki því hann á fjórar af sex lengstu sigurgöngum KR í 12 liða deild og sjö af umræddum þrettán lengstu. Bjarni Guðjónsson á tvær frá sumrinu 2015 sem var hans fyrsta sem aðalþjálfari KR-inga. Logi Ólafsson á tvær og Willum Þór Þórsson er síðan með þá síðustu en liðið vann fimm leiki undir hans stjórn undir lok 2016 tímabilsins.Lengstu sigurgöngur KR-inga í 12 liða deild (2008-2019):8 sigurleikir í röð 2019 undir stjórn Rúnars Kristinssonar7 sigurleikir í röð 2013 undir stjórn Rúnars Kristinssonar6 sigurleikir í röð 2010 undir stjórn Rúnars Kristinssonar2009 undir stjórn Loga Ólafssonar5 sigurleikir í röð2016 undir stjórn Willums Þórs Þórssonar 2012 undir stjórn Rúnars Kristinssonar4 sigurleikir í röð 2015 undir stjórn Bjarna Guðjónssonar 2015 undir stjórn Bjarna Guðjónssonar 2013 undir stjórn Rúnars Kristinssonar 2013 undir stjórn Rúnars Kristinssonar 2011 undir stjórn Rúnars Kristinssonar2009 undir stjórn Loga Ólafssonar2008 undir stjórn Loga Ólafssonar
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira