Fjármögnum innviðafjárfestingar með grænum skuldabréfum Andri Guðmundsson og Kristján Guy Burgess skrifar 10. júlí 2019 08:30 Nýleg skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs með bestu vöxtum Íslandssögunnar sýnir vel hversu góður árangur hefur náðst á tíu árum við að byggja ríkissjóð upp eftir efnahagshrunið. Alþjóðlegir lánamarkaðir eru aftur opnir fyrir íslenska útgáfu, lánshæfið batnar og kjörin líka. Eftirspurnin eftir skuldabréfunum var fimmföld og útboðið heppnaðist afar vel. Þessi árangur dregur fram möguleikana í að þróa á næstu tíu árum sókn Íslendinga eftir hagstæðri fjármögnun á alþjóðlegum mörkuðum. Mörg tækifæri geta falist í því að sækja erlendan gjaldeyri inn í hagkerfið til að fjármagna nauðsynlega innviðauppbyggingu um leið og skapaðar eru forsendur fyrir trausta langtímafjárfestingu fyrir lífeyrissjóði.Nýleg skuldabréfaútgáfa ríkissjóðs með bestu vöxtum Íslandssögunnar sýnir vel hversu góður árangur hefur náðst á tíu árum við að byggja ríkissjóð upp eftir efnahagshrunið. Alþjóðlegir lánamarkaðir eru aftur opnir fyrir íslenska útgáfu, lánshæfið batnar og kjörin líka. Eftirspurnin eftir skuldabréfunum var fimmföld og útboðið heppnaðist afar vel. Þessi árangur dregur fram möguleikana í að þróa á næstu tíu árum sókn Íslendinga eftir hagstæðri fjármögnun á alþjóðlegum mörkuðum. Mörg tækifæri geta falist í því að sækja erlendan gjaldeyri inn í hagkerfið til að fjármagna nauðsynlega innviðauppbyggingu um leið og skapaðar eru forsendur fyrir trausta langtímafjárfestingu fyrir lífeyrissjóði. Við teljum að nú sé tækifæri til að skoða af alvöru möguleikana á því að ríkissjóður gefi út græn skuldabréf til að fjármagna aðgerðir í baráttunni við loftslagsbreytingar.Sjöfaldur ávinningur Útgáfa grænna ríkisskuldabréfa getur slegið margar flugur í hverju höggi.Græn ríkisskuldabréfaútgáfa er sterkt merki um að ríki taki loftslagsvána alvarlega og ætli að leggja sitt af mörkum.Nýir og fjölbreyttir fjárfestar taka þátt í útboðum. Meirihluti fjárfesta í grænu skuldabréfaútboði Póllands voru nýir fjárfestar.Það er möguleiki á betri kjörum – Frakkar náðu því í sinni útgáfu, aðrir hafa ekki fengið lakari kjör.Aukinn sýnileiki í útboði. Ríki hafa notað græna útgáfu til að vekja athygli á alþjóðavettvangi og byggt undir ímyndarstarf og markaðssókn til að auka verðmæti á útflutningsvörum.Stjórnvöld taka þátt í að skapa grænan fjármálamarkað og gefa innlendum fagfjárfestum leiðir til að virkja sitt fé til góðra verka.Leið til að flýta nauðsynlegum innviðafjárfestingum sem bæta umhverfið og sækja nýtt fjármagn í stórframkvæmdir.Forysta á heimsvísu. Ríki sem ná góðum árangri í grænni útgáfu, eru öðrum fyrirmynd og geta miðlað dýrmætri þekkingu og reynslu. Fjármögnun loftslagsaðgerða Með vel útfærðri stefnu um útgáfu grænna skuldabréfa til að fjármagna aðgerðaáætlun í loftslagsmálum, getur Ísland skipað sér í fremstu röð alþjóðlega og sýnt öðrum ríkjum fram á hvernig unnt sé að ná árangri við fjármögnun loftslagsaðgerða. Hvort sem um er að ræða rafbílavæðingu, almenningssamgöngur, fulla rafvæðingu hafna, umhverfisvænt húsnæði, eða endurvinnslu, eru græn skuldabréf ákjósanleg leið fyrir útgefendur og innlenda og erlenda fjárfesta. Fylgja eftir árangri Íslands Íslendingar eru nú þegar í fararbroddi á heimsvísu hvað varðar græna orkugjafa: ekkert land í heiminum framleiðir hærra hlutfall rafmagns með grænum endurnýjanlegum orkugjöfum og Reykjavík er eina höfuðborg heimsins sem alfarið er hituð með jarðvarma. Hér njótum við forskots á aðrar þjóðir sem mögulegt er að vinna enn betur með, og búa til aukin verðmæti úr. Ef vel tekst til við að koma grænum fjárfestingum á kortið á Íslandi, getur kastljósið á Ísland sem fyrirmyndarland í loftslagsmálum orðið sterkara en nokkru sinni fyrr og skapað landinu áður óþekkt tækifæri. Vel heppnuð græn skuldabréfaútgáfa Á allra síðustu misserum hafa íslenskir aðilar hafið útgáfu á grænum skuldabréfum með góðum árangri. Landsvirkjun sótti sér fjármagn á Bandaríkjamarkað og Fossar Markaðir unnu með Reykjavíkurborg og Orkuveitu Reykjavíkur í þeirra fyrstu útgáfum á grænum skuldabréfum til að fjármagna innviði fyrir orkuskipti, átak í gerð hjólastíga og í CarbFix verkefnið um kolefnisbindingu í basalt sem hefur notið athygli víða um heim. Reynslan af þessari útgáfu var mjög góð og lærdómsrík; áhuginn mikill, eftirspurnin stóreykst og kjörin batna. Nýir fjárfestar sækjast eftir að taka þátt. Sjóðir sem fjárfesta með samfélagslega ábyrgum hætti leggja mikið upp úr að finna slíka fjárfestingarkosti og hafa áhuga á að skilja í hvað fjárfestingin fer – sem eru nýmæli hjá kaupendum skuldabréfa. Þetta er leiðin til að virkja fjárfesta – erlenda sem innlenda – með í fjármögnun nauðsynlegra innviða og nýsköpunar um græna framtíð. Betri vextir, margföld eftirspurn Nokkur Evrópuríki hafa á síðustu árum haslað sér völl við útgáfu á grænum ríkisskuldabréfum og gert það að nýrri fjármögnunarleið fyrir sína ríkissjóði. Hvarvetna hefur reynslan af slíkri útgáfu verið afar góð. Frakkar sóttu sér betri lánskjör en ríkissjóður þeirra naut áður. Pólverjar og Litháar sóttu sér fé til að undirbúa orkuskipti, það gerðu Belgar líka. Írar gáfu út sitt fyrsta græna ríkisskuldabréf í fyrra með góðum árangri og hyggjast halda slíkri útgáfu áfram til að fjármagna skuldbindingar Parísarsamkomulagsins. Svíar undirbúa útgáfu á grænum ríkisskuldabréfum á grundvelli skýrslu sem Mats Andersson, fv. forstjóri eins stærsta lífeyrissjóðs Svíþjóðar, vann fyrir sænska fjármálaráðuneytið, en hann sótti Ísland heim í fyrra á vegum Fossa markaða. Hollendingar gáfu út sitt fyrsta græna ríkisskuldabréf fyrir fáeinum vikum upp á 6 milljarða evra en tilboð fóru yfir 20 milljarða evra, að miklu leyti frá sjóðum sem vilja fjárfesta í umhverfisvænum fjárfestingum. Eftirspurnin var afar mikil, á 7 mínútum voru tilboð komin yfir 10 milljarða evra og á 18 mínútum yfir 15 milljarða. Grænum fjárfestum var gefinn forgangur að útboðinu sem þeir nýttu sér. Það sýnir að þessi fjármögnunarleið fyrir ríkissjóði er komin til að vera. Rétti tíminn nálgast hratt Undirritaðir hafa lengi haft áhuga á því að íslenskir aðilar tileinki sér aðferðafræði grænna fjárfestinga. Nú virðast forsendurnar vera að skapast til að stíga stór skref í þessum efnum og að íslenska ríkið gefi út græn ríkisskuldabréf til að fjármagna metnaðarfulla áætlun um aðgerðir gegn loftslagsvá og fyrir kolefnishlutleysi Íslands. Það er ekki eftir neinu að bíða. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Birtist í Fréttablaðinu Viðskipti Mest lesið Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason Skoðun Skoðun Skoðun Ísland vísar veginn í beinni nýtingu jarðhita Nótt Thorberg skrifar Skoðun Gjafakvótakerfið sem ráðherra Viðreisnar vill ekki kannast við Jón Kaldal skrifar Skoðun Hvað á að gera við afa? Stefanía Fanney Björgvinsdóttir skrifar Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar Skoðun Verðbólga eða atvinnuleysi, hvort viltu frekar? Elliði Vignisson skrifar Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar Skoðun Kæru landar – af hverju eigum við að segja nei í ágúst? Þorvaldur Ingi Jónsson skrifar Skoðun Stöðugleiki eða sveigjanleiki Sigurjón Njarðarson skrifar Skoðun Lágt atvinnuleysi? Lítum á tölurnar Halldór Jörgen Olesen skrifar Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar Skoðun Heilbrigðiseftirlit á heima í nærumhverfinu Kolbrún Georgsdóttir skrifar Skoðun Hvers vegna styðja Íslendingar dánaraðstoð og hvað veldur andstöðu? Ingrid Kuhlman skrifar Skoðun Ábyrgð í útlendingamálum – breytingar og árangur Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir skrifar Skoðun Tröllin eru að koma Björg Eva Erlendsdóttir skrifar Skoðun Ofbeldisstofnanir ríkisins ráðast á Ljósmyndara Kristján Logason skrifar Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar Skoðun Fulltrúar ESB á RÚV Jón Bjarnason skrifar Skoðun Óalandi og óferjandi Gunnar Salvarsson skrifar Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar Skoðun Brjóstsviði á sumrin – þegar meltingin fer í sumarfrí Elísabet Reynisdóttir skrifar Skoðun Eiginleikar góðs leiðtoga Hólmfríður Jennýjar Árnadóttir skrifar Skoðun Var samninganefndin að vinna eftir umboði Alþingis? Erna Bjarnadóttir skrifar Skoðun Hræsni siðferðisriddara Sigurjón Þórðarson skrifar Skoðun „Við erum svo eitruð að við gætum ekki flokkast sem matvara“ Anna María Björnsdóttir skrifar Skoðun Er drónaskapur dónaskapur? Björn Steinbekk skrifar Skoðun Greining Kolbrúnar Bergþórsdóttur á geðástandi andstæðinga ESB Gunnar Ármannsson skrifar Skoðun Þegar allt virðist vera í lagi í vinnunni Ragnhildur Bjarkadóttir skrifar Skoðun Um mögulega 20 km styttingu Hringvegar á Norðurlandi vestra Jónas B. Guðmundsson skrifar Sjá meira
Skoðun Vandræðagangur ráðuneytis við kerfisbreytingar setur þingnefnd í vanda Leifur Þorkelsson skrifar
Skoðun Hugleiðingar um heimili fyrir færniskert fólk á ýmsum aldri Sigrún Huld Þorgrímsdóttir skrifar
Skoðun Um brottfararstöð og vistun barna Grímur Grímsson,Víðir Reynisson,Sandra Sigurðardóttir,Kolbrún Áslaugar Baldursdóttir,Guðmundur Ari Sigurjónsson skrifar
Skoðun Nýtt kvótakerfi í sjókvíaeldi — á kostnað landeigenda og veiðiréttarhafa Jóhann Helgi Stefánsson skrifar
Skoðun Kerfisgreining á íslensku fullveldi: Hvar liggja hagsmunir almennings í skugga íslenska nýlénsskipulagsins? Sigurður Sigurðsson skrifar
Skoðun Uppbygging nýrra hverfa skapar störf fyrir allt að 250 starfsgreinar Kristján Daníel Sigurbergsson skrifar
Skoðun Manngerð mengun í Varmá kallar á aukið eftirlit með jarðborunum fremur en að dregið sé úr því Davíð A Stefánsson skrifar