Skutu á rússneska herþotu í lofthelgi Suður-Kóreu Kjartan Kjartansson skrifar 23. júlí 2019 07:47 Suður-kóreskar F-15k-orrustuþotur við æfingar. Myndin er úr safni. Vísir/EPA
Suður-kóreski flugherinn skaut viðvörunarskotum að rússneskri A-50-orrustuþotu sem fór inn í lofthelgi landsins í dag. Formaður þjóðaröryggisráðs Suður-Kóreu hefur mótmælt flugi rússnesku vélarinnar harðlega við þjóðaröryggisráð Rússlands. Þrjár rússneskar og tvær kínverskar herþotur fóru inn á loftvarnasvæði Suður-Kóreu þar sem erlend loftför þurfa að gera grein fyrir sér. Ein rússnesku vélanna hætti sér lengra inn í lofthelgina sjálfa, yfir Dokdo/Takeshima-eyjum sem Suður-Kóreumenn hafa á valdi sínu en Japanir gera tilkall til, um klukkan 9:00 að staðartíma, að sögn breska ríkisútvarpsins BBC. F-15k og F-16k-orrustuþotur voru sendar til móts við rússnesku þotuna og skutu þær blysum og viðvörunarskotum að henni. Þegar rússneska þotan sneri aftur inn í svæðið nokkrum mínútum síðar skutu suður-kóresku þoturnar fleiri skotum að henni. Atvikið er sagt það fyrsta sinna tegundar á milli Rússlands og Suður-Kóreu. Skrifstofa forseta Suður-Kóreu segir hann líta á atvikið alvarlegum augum. Endurtaki það sig muni Suður-Kóreumenn bregðast harðar við. Hvorki Rússar né Kínverjar hafa tjáð sig um atvikið enn sem komið er.
Kína Rússland Suður-Kórea Mest lesið Fjarlægðu myndskeið af golfhermi úr Kveiksþætti Innlent Hafi ekki verið í formlegri heimsókn í moskunni Innlent „Mér finnst það alvarlegt“ Innlent Kveiksþætti kippt út tímabundið Innlent Þurft að dvelja í einangrunarklefum vegna plássleysis Innlent Hljóta dóm fyrir að kveikja í Teslu lögreglumanns eftir allt saman Innlent Hildi og Inga Þór sagt upp Innlent Engar vísbendingar og lítið af upplýsingum Innlent Ráðin til þess að fremja ofbeldisbrot á Íslandi Innlent Sveik hundruð þúsunda af vistmanni á Grenilundi Innlent Fleiri fréttir Stýrivextir óbreyttir og stutt í kosningar Skipverjar skemmtiferðaskips sitja fastir í Kambódíu Senda þúsund hermenn til Haítí eftir umsátur Kerfisvilla og mannleg mistök leitt til slyssins Fleiri gamalmenni en börn í Kína Sátu undir sögufyrirlestri Pútíns Báðir vilja mynda ríkisstjórn en ekki vinna með aröbum Minnst 64 sagðir látnir í árekstri hraðlesta á Spáni Opinberuðu lögbrot í kjúklingabúi með falinni myndavél Ted Bundy tengdur við 52 ára gamalt óleyst morð Meirihluti atkvæða talinn en enginn með þingmeirihluta Tekur við Bolsonaro opnum örmum Munda fallbyssurnar við landamærin Enginn skýr sigurvegari í útgönguspám Efins um „einkaframtak Norðmanna og Finna“ Tveir ákærðir vegna uppákomu við bandaríska herstöð á Englandi Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Sjá meira