Þrír leikmenn í íslenska boltanum með meira en 3,6 milljónir í laun á mánuði Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 30. júlí 2019 08:30 Frá leik FH og Vals í Pepsi Max deild karla í sumar. Vísir/Vilhelm
Knattspyrnumenn á Íslandi eru alltaf að fá meira og meira borgað fyrir „áhugamennsku“ sína og Pepsi Max deild karla er á góðri leið með að verða atvinnumannadeild. Morgunblaðið segir í dag frá niðurstöðum í ítarlegri könnun Leikmannasamtaka Íslands á kjörum og vinnuumhverfi leikmanna í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu á Íslandi og er byggð á svörum 191 leikmanns í deildinni. Þessi könnun er borin saman við samskonar könnun frá árinu 2016 og það hefur talsvert breyst á þessum þremur árum í deildinni hér heima því laun leikmanna hafa hækkað talsvert. Stærsti hluti leikmanna sem svaraði þessari könnun sögðust vera með laun á bilinu 242 til 485 þúsund á mánuði en 30 prósent leikmanna merktu við það. Fimmtán prósent leikmanna eru með 485 til 970 þúsund á mánuði, fimm leikmenn sögðust vera að fá 970 til 1.820 þúsund á mánuði, tveir leikmenn eru með 1,8 til 3,6 milljónir á mánuði og þá eru þrír leikmenn í Pepsi Max deild karla 2019 með meira en 3,6 milljónir íslenskra króna í laun á hverjum mánuði. Leikmenn hafa verið að koma „snemma“ heim úr atvinnumennsku sem gæti haft áhrif á launagreiðslur. Morgunblaðið segir frá því til samanburðar að enginn var með meira en 1,8 milljónir í laun á mánuði árið 2016 og þrettán leikmenn í þá Pepsi deildinni fengu 485 til 970 þúsund krónur í mánaðarlaun. Hér sé því augljóslega um risastökk að ræða fyrir launahæstu leikmenn deildarinnar. Leikmannasamtök Íslands fagna þessari þróun í samtali við Morgunblaðið og segja þetta sýna að hægt sé að vera atvinnumaður í knattspyrnu á Íslandi.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira