Heiðar: Við ætlum að lenda í topp þremur Runólfur Trausti Þórhallsson skrifar 7. ágúst 2019 21:39 Heiðar Ægisson fyrr í sumar. vísir/daníel „
Góð þrjú stig, loksins vinnum við. Höfum verið að gera full mikið af jafnteflum í undanförnum leikjum svo það var gott að fá loksins þrjú punkta,“ sagði alsæll Heiðar Ægisson að loknum 2-1 sigri Stjörnunnar á Víkingum í Pepsi Max deild karla í kvöld. Það hefur verið mikið álag á Stjörnuliðinu undanfarnar vikur en liðið hefur leikið fjóra Evrópuleiki á á skömmum tíma sem og að vera spila í Pepsi Max deildinni. Heiðar viðurkenndi að það álag hefði sést á liðinu þegar líða fór á leikinn í kvöld. „Það var alveg farið að taka sinn toll að spila tvo leiki í viku en það er alltaf gaman í Evrópu og við stefnum á það aftur, að komast í Evrópu á næsta ári þar að segja.“ Sigur kvöldsins þýðir að Stjarnan situr nú í 3. sæti deildarinnar með 24 stig þegar 15 umferðir eru búnar. Deildin er einkar jöfn en Breiðablik er í 2. sæti með 26 stig og Valur í því 4. með 23 stig. Þá eru ÍA og FH bæði með 22 stig. Heiðar er samt ekkert að fara í felur með markmið Stjörnunnar. „Við ætlum að lenda í topp þremur efstu sætum deildarinnar. Það er markmiðið og þá komumst við í Evrópu. Það er ekkert flóknara en það,“ sagði Heiðar að lokum. Heiðar átti góðan leik en hann kom að báðum mörkum Stjörnunnar í kvöld. Hann lék á hægri vængnum í dag en hann hefur aðallega leikið sem hægri bakvörður eða miðjumaður í gegnum tíðina. Eftir frammistöðuna í dag verður erfitt fyrir Rúnar Pál, þjálfara Stjörnunnar, að færa Heiðar aftur niður í bakvörð.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Hafrún heiðraði mömmu sína og frænku Fótbolti Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira