Við það að fara af stað þegar teygjan slitnaði Sylvía Hall skrifar 22. ágúst 2019 21:13 Mennirnir voru komnir í beltin og tilbúnir þegar teygjan hrynur niður. Skjáskot
Það mátti ekki tæpara standa þegar teygja í svokölluðu teyjuskotstæki (e. slingshot) slitnaði þegar starfsmaður var við það að fara að setja tækið í gang. Atvikið átti sér stað í Cobra-skemmtigarðinum í Flórída um síðustu helgi. „Við vorum að komast hjá dauðanum,“ heyrist í stúlkunni sem náði atvikinu á myndband. Mennirnir sem voru í tækinu voru þó hinir rólegustu eftir atvikið, þó einn hafi signað sig með bros á vör. Eftir atvikið var tækið tekið úr umferð og enginn slasaðist. Þó mátti heyra á vinkonum mannanna að þær voru nokkuð eftir sig eftir atvikið, enda mátti litlu muna að verr færi. Á vef AOL kemur fram að tækið hafi verið lagað og sé komið í gagnið á ný. Umrætt tæki er vinsælt í skemmtigörðum víða um heim þó samskonar atvik séu fátíð.Uppfært kl. 15.49: Einar Árnason, talsmaður Taylor Tívolí Ísland, bauðst til að útskýra hvað hann telji að hafi farið úrskeiðis á myndbandinu. Hann segir að svona óhöpp eigi ekki að geta gerst ef farið sé eftir öryggiskröfum. Einar segir að á hverjum degi sé teygjan yfirfarin í Taylor Tívolí og henni skipt út reglulega, líkt og reglur kveða á um, og þá séu öll tækin tekin út af vinnueftirlitinu. Hann óttast að í tilviki bandaríska skemmtigarðsins hafi aðstandendur mögulega sparað sér aura á kostnað öryggis.
Bandaríkin Mest lesið „Borgarstjórnarmeirihlutanum er ekki viðbjargandi“ Menning Balti og Sunneva brugðu sér af bæ Bíó og sjónvarp Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Lífið Boltamömmur í miðjumoði Gagnrýni Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Lífið Nýr Bond lítur dagsins ljós von bráðar Bíó og sjónvarp Top Gun- og Alien-leikari látinn Lífið Síminn stoppar ekki vegna heimildarmyndar Bíó og sjónvarp Ótrúleg saga fólks sem valdi mildi og mannúð í stað reiði Menning Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Lífið Fleiri fréttir Dóttir ísdrottningar fetar í fótspor móðurinnar Top Gun- og Alien-leikari látinn Hvað veistu um… Karl Bretakonung? Skaddaður á höndunum og allavega þrír dagar eftir Færsluóður miðaldra höfundur: „Ég man ekki eftir að hafa gengið í þessar grúppur“ „Ég get ekki leikið lengur. Ég get ekki lesið“ Óleyst íslensk ráðgáta: Veist þú svarið? Grenjaði, veipaði og keyrði stanslaust Gengst við slúðursögu um þungunarpróf Konur æfi með líkamanum, ekki gegn honum Tólf barna móðir selur sveitadraum Rekinn úr körfuboltaliði FSU fyrir að detta í það Bólginn á höndunum skríðandi til Bessastaða Erfitt að geta ekki eytt peningunum í föt Kristófer Acox selur íbúð með potti í Urriðaholti Umdeildur hlaðvarpspabbi orðinn móðir Harry vill sættast við fjölskylduna Miðaldra kona þóttist vera sofandi í Epal Ranglega greind með MS-sjúkdóm Tískudrottning og fréttamaður selja í Vesturbæ Jennifer Lopez að hitta Ted Lasso-stjörnu Wahlberg segir flugmennina hafa bjargað lífi sínu Hvað veistu um… Nylon? Sahara Ray látin Bjarni Ben og Inga Lind gæddu sér á túnfiski Richard Riehle látinn Costanza á klakanum Gjörbreytti einbýli í Kópavoginum Píparapæja selur pent „penthouse“ Sló í brýnu milli poppara yfir Ratcliffe Sjá meira