Heiðra Eagles með tónleikum JHHJ kynnir 5. september 2019 14:45 Hljómsveitin Eagles lék í Laugardalshöll árið 2011. Þeir Jógvan Hansen, Matti Matt og Vignir Snær ætla að heiðra hljómsveitina með tónleikum. Stefán „
Ég er svo væminn að uppáhalds Eagles-lagið mitt er Peaceful easy feeling. Ég vona að ég fái að syngja það, ef Matti og Vignir verða ekki of frekir, annars gerum við út um það í sjómann,“ segir tónlistarmaðurinn Jógvan Hansen en hann og félagar hans Matti Matt og Vignir Snær, blása til tónleika þar sem þeir flytja öll bestu lög Eagles.Jógvan ætlar að syngja Peaceful easy feeling á tónleikunum.Tónleikarnir fara fram í Salnum í Kópavogi þann 26. október og þar á eftir er ferðinni heitið norður. „Við verðum á Græna hattinum 31. október og á Rauðku á Siglufirði 1. nóvember. Svo erum við að vinna í fleiri tónleikum um landið,“ segir Jógvan. Þá hafi lengi langað að flytja lög Eagles á tónleikum. „Þetta er svo ótrúlega góð hljómsveit og raddsetningarnar í öllum þeirra lögum eru svakalega flottar. Það er sérstaklega skemmtilegt að flytja þessa tónlist og um það snýst þetta hjá okkur, og að sýna hvað við erum fjölhæfir tónlistarmenn,“ segir hann hlæjandi en þeir verða bara þrír á sviðinu og sjá um allan flutning sjálfir.Matthías Matthíasson mun þenja raddböndin á sviðinu.„Það verður áskorun. Vignir kann reyndar að spila á öll strengjahljóðfæri í heiminum og Matti er líka mjög seigur, spilar meðal annars á bassa og ég bæti svo fiðlunni inn í þetta og spila á gítar. Svo vinnur tæknin líka með okkur. Það er hægt að gera allskonar hluti með henni þannig að við munum hljóma eins og við séum miklu fleiri en þrír á sviðinu. Við viljum búa til flotta upplifun fyrir gesti,“ segir Jógvan. Miðarnir rjúki út eins og heitar lummur og hver fari að verða síðastur að ná sér í miða. Þá sé ekki útilokað að tónleikarnir verði fleiri.Vignir Snær Vigfússon spilar á öll heimsins strengjahljóðfæri að sögn Jógvans.„Það er aldrei að vita. Eagles hafa gert svo ótrúlega mörg flott lög, Hotel California, Desperato, Lying eyes, Tequila Sunrice og mörg, mörg fleiri, og allir eiga sitt uppáhalds Eagles-lag. Það er ekki sjálfgefið að búa til tónlist sem allir geta tengt við og er svona auðveld að hlusta á. Þess vegna er þessi hljómsveit svona stór og hefur gengið áratugum saman. Okkur langar til að heiðra þessa listamenn. Við Matti og Vignir höfum lengi unnið saman og erum allir miklir aðdáendur þessara laga. Það mun skila sér á tónleikunum,“ segir Jógvan. Uppáhalds Eagles-lag Jógvans má spila hér fyrir neðan:Þessi kynning er unnin í samstarfi við JHHJ
Tónlist Mest lesið „Eru þær í alvöru tvíburar?“ Lífið Dorrit segir þetta besta tímann til að fara til Abu Dhabi Lífið „Þú ert stærsta súperstjarnan á plánetunni jörð“ Tónlist Fréttatía vikunnar: Bíll, belja og Bandaríkjaforseti Lífið Kórstjórinn sem ól upp kynslóðir Kársnesbúa: „Sönglaus skóli er hjartalaus skóli“ Lífið Frekari skakkaföll í leikhúsunum Lífið Gimpið í Pulp Fiction er látið Lífið Líklega ekki langt í fyrstu bótoxsprautuna í punginn hér á landi Lífið Öskrað á of litlu sviði Gagnrýni Miðflokkskonur gera sig klárar í bátana Lífið Fleiri fréttir Kerry Ellis og The Barricade Boys saman í Broadway Party í Hörpu Markviss húðumhirða fyrir húð sem fær bólur Unglingar þurfa ekki sýrukrem! Á fermingarkvöldi Hagkaups er farið yfir málin Nærföt og náttföt rjúka út í nýrri vefverslun Lindex Farðinn sem endurvekur þig Spilaðu golf allt árið með Evrópuferðum Stjörnukokkurinn Adam Dahlberg mætir á Lólu Öskursyngja ABBA lögin með áhorfendum Taktu þátt í konudagsleik Vísis Frá kvíða til aukins sjálfstrausts Draumaferð til Kína um páskana Hárlos eftir fæðingu, tímabundið eða varanlegt? Hvað er eiginlega málið með Mál málanna? Sjá meira