Enginn hafði náð þessu síðan Andri Sigþórs sumarið 1997 Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. september 2019 15:00 Morten Beck Guldsmed. Vísir/Bára
Danski framherjinn Morten Beck Guldsmed skoraði þrennu í sigri FH á ÍBV í gær og hefur þar með skorað þrennu í tveimur leikjum í röð í Pepsi Max deild karla. Því hafði enginn náð í 22 ár. Morten Beck Guldsmed skoraði þrennu í 3-1 útisigri á Stjörnunni 31. ágúst síðastliðinn en svo tók við landsleikjahlé og bikarúrslitaleikur. Næsti deildarleikur Danans var því á móti Eyjamönnum í gær 19. september. Morten Beck skoraði öll þrjú mörkin sín á móti Stjörnunni í seinni hálfleik og tvö af þremur mörkum í gær í fyrri hálfleik. Hann skoraði síðan þriðja og síðasta markið sitt á 52. mínútu sem þýðir að Daninn náði að skora sex mörk á aðeins 80 mínútum í Pepsi Max deildinni. Síðastur maðurinn á undan Morten Beck Guldsmed til að skora þrennu í tveimur deildarleikjum í röð var KR-ingurinn Andri Sigþórsson sumarið 1997. Andri, sem er um þessar mundir að selja glæsilegt einbýlishús sitt og Anne Jakobsen í Fossvogsdal, skoraði þá fyrst fimm mörk í 6-2 útisigri á Skallagrími í Borgarnesi 6. ágúst og fylgdi því eftir með þrennu í 6-1 sigri á Val 17. ágúst. Hann var því með átta mörk í þessum tveimur deildarleikjum en Andri skoraði alls 14 mörk í 14 deildarleikjum á leiktíðinni. Líkt og hjá Morten Beck þá spilaði Andri leik í annarri keppni í millitíðinni. Morten Beck náði þannig ekki að skora í bikarúrslitaleiknum á móti Víkingi um síðustu helgi. Andri Sigþórsson lék tvo leiki í millitíðinni, fyrst bikarleik á móti ÍBV úti í Eyjum í undanúrslitum og svo fyrri leikinn á móti gríska félaginu OFI kreta í 2. umferð forkeppni UEFA-bikarsins. Andri náði ekki að skora í þeim leikjum en fann aftur skotskóna þegar kom að næsta deildarleik. Hér fyrir neðan má sjá nokkrar fréttir um afrek Andra frá því fyrir 22 árum síðan.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Spurðu stuðningsmenn Man. United hvaða leikmenn eigi skilið að vera áfram Enski boltinn Fleiri fréttir Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Aron Þórður hættur Sjá meira