Íslandsmeistararnir mættu þegar KR vann Íslandsmeistaratitil annan daginn í röð Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 18. september 2019 12:30 Íslandsmeistarar KR/KV í 3. flokki með Íslandsmeisturunum í Pepsi Max deild karla. Vísir/Kári
Nýkrýndir Íslandsmeistarar KR í Pepsi Max deild karla í knattspyrnu mættu til að hvetja 3. flokk KR til dáða í úrslitaleik Íslandsmótsins í gær. Stuðningurinn hafði greinilega góð áhrif á liðið því 3. flokkurinn hjá KR vann öruggan 5-1 sigur á Fjölni í úrslitaleiknum sem fór fram á heimavelli Fjölnismanna. Fjölnismenn unnu hlutkesti um það hvort lið fengi heimaleikinn en heppnin var ekki með þeim í sjálfum úrslitaleiknum. KR vann því Íslandsmeistaratitla tvö kvöld í röð og það er því gaman á Meistaravöllum þessa dagana. KR vann 3. flokkinn þarna í sautjánda sinn en í fyrsta sinn frá árinu 2014. Þetta er jafnframt í fyrsta sinn síðan 1950 þar sem KR-ingar verða Íslandsmeistarar í bæði meistaraflokki og 3. flokki. Styrmir Máni Kárason og Birgir Steinn Styrmisson komu KR-ingum í 2-0 með mörkum með tveggja mínútna millibili í upphafi leiks en Daníel Smári Sigurðsson minnkaði muninn fimm mínútum síðar. KR-ingar gerðu svo út um leikinn með tveimur mörkum fyrir hálfleik. Það fyrra skoraði Jóhannes Kristinn Bjarnason úr vítaspyrnu en það síðara Freyr Þrastarson. Birgir Steinn Styrmisson innsiglaði síðan sigurinn með sínu öðru marki í seinni hálfleiknum. KR og KV eru með sameiginlegt lið í 3. flokknum og þjálfarar liðsins eru þeir Sigurður Víðisson og Auðunn Örn Gylfason. Fyrirliði liðsins er markvörðurinn Sigurpáll Sören Ingólfsson. KR/KV vann Stjörnuna 4-3 í undanúrslitaleiknum en þar skoruðu þeir Jökull Tjörvason, Jóhannes Kristinn Bjarnason, Styrmir Máni Kárason og Róbert Logi Jónsson mörkin. Sex leikmenn skoruðu því mörk KR-liðsins í þessum úrslitaleikjum sumarsins.
Pepsi Max-deild karla Reykjavík Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira