H&M setur þrýsting á leigusalana Þorsteinn Friðrik Halldórsson skrifar 11. september 2019 07:30 H&M rekur verslun á Hafnartorgi. vísir/vilhelm
Sænsku verslanakeðjunni H&M og leigusölum hennar hefur lent saman vegna krafna keðjunnar um ákvæði í leigusamningum um að leigusalarnir beri kostnaðinn af auknum vöruskilum. Slík ákvæði tíðkast þó ekki enn hér á landi. Breska dagblaðið The Sunday Times greinir frá og byggir umfjöllun sína á frásögnum heimildarmanna. Samkvæmt heimildum blaðsins fer H&M ekki einungis fram á við leigusala að leigugreiðslur séu tengdar veltu heldur einnig að skil á vörum til verslana keðjunnar komi til lækkunar á veltunni og þar með leigugreiðslum. Þannig lækki virði atvinnuhúsnæðisins. Heimildir The Sunday Times herma jafnframt að H&M bjóði leigusölum eins konar heildarsamninga þar sem verslanakeðjan leggur til veltutengdar leigugreiðslur og felur leigusölunum að skipta þeim milli leigu, fasteignagjalda og þjónustugjalda. Leigusalarnir þurfi því að sætta sig við lágar leigutekjur til þess að standa straum af kostnaði vegna fasteignaskatta og þjónustu. Tilraunir H&M til að fá leigusala til að bera kostnaðinn af vöruskilum hafa fengið slæmar viðtökur hjá leigusölunum sem sumir hafa hafnað tillögum verslanakeðjunnar. „Sumir leigusalar standa uppi í hárinu á þeim en fulltrúar H&M benda þá bara á sænska móðurfélagið,“ sagði einn heimildarmanna breska blaðsins. Í umfjölluninni segir að veltutengdir leigusamningar séu nokkuð nýlegt fyrirbæri í Bretlandi og að þeir séu merki um að völdin séu að færast frá leigusölunum til smásölurisanna. Stórar verslanakeðjur á borð við Top Shop hafa nýtt tækifærið í greiðsluþrotameðferð til að endursemja um leigukjör. Stöndugri keðjur á borð við Next heimta síðan sambærileg kjör. H&M rekur þrjár verslanir hér á landi; eina í Kringlunni, aðra í Smáralind og þá þriðju á Hafnartorgi. Þá var nýlega greint frá því að H&M myndi opna verslun á Glerártorgi á Akureyri haustið 2020. Fasteignafélagið Reginn á Smáratorg og verslunarhúsnæðið á Hafnartorgi en Reitir eiga Kringluna. Heimildir Markaðarins innan fasteignafélaganna herma að engin ákvæði um vöruskil séu í leigusamningunum á Íslandi. Þá hafi H&M ekki þrýst sérstaklega á breytingar á leigusamningum á síðustu mánuðum. H&M á Íslandi hagnaðist um 105 milljónir króna á síðasta ári sem var fyrsta heila rekstrarár fyrirtækisins frá því að það hóf starfsemi hér á landi árið 2017. Verslanakeðjan seldi fyrir tæplega 2,4 milljarða króna á árinu en rekstrarkostnaður nam 2.258 milljónum króna. Í ársreikningi H&M á Íslandi kemur fram að árlegar leigugreiðslur félagsins nemi um 144 milljónum króna. Kostnaðurinn við vöruskil hefur hækkað. Árið 2016 var metið að vöruskil kostuðu smásölufyrirtæki 60 milljarða punda, jafnvirði 9.300 milljarða króna, á hverju ári en síðan þá hefur verið verulegur vöxtur í netverslun. Sérfræðingar á smásölumarkaði telja að hver flík sem er skilað kosti verslanir að jafnaði 12 pund, jafnvirði 1.900 króna. Oft þurfi að hreinsa flíkurnar, endurpakka þeim og flytja aftur í verslanir.Leiga á Hafnartorgi töluvert undir markaðsleigu Helgi S. Gunnarsson, forstjóri Regins, sagði í ítarlegu viðtali í Markaðinum í vor að leiguverð á Hafnartorgi, þar sem H&M er til húsa, væri um þær mundir töluvert undir markaðsleigu. „Samningarnir eru settir þannig saman að það er grunnverð og stefnt er á að eftir nokkur ár verði leigan komin í ákveðna fjárhæð. Leigutakarnir þurfa að fá tíma til að byggja upp verslanirnar enda er svæðið ekki fullmótað. Þess vegna er leiguverði stillt í hóf og yfirleitt tengt veltu en þó mismikið. Til að byrja með er fermetraverðið örugglega helmingur á við góð bil á Laugaveginum,“ sagði Helgi sem tók fram að erlendis tíðkaðist það að stórar verslanakeðjur semdu um að leiguverð tengdist veltu. „Þar með sameinast leigusali og verslunarrekandi um áhættuna sem tekin er. Ef það gengur illa lækkar leigan, ef það gengur vel þá hækkar hún,“ sagði Helgi.
Birtist í Fréttablaðinu H&M Markaðir Mest lesið Bláa lónið eykur hlut sinn í þremur baðlónum Viðskipti innlent Sameinaður sjóður ætti rúma þúsund milljarða Viðskipti innlent Epli opnar nýja og glæsilega verslun í Smáralind Samstarf Tvær stöndugar fasteignasölur sameinast Viðskipti innlent Dóra Björt ráðin deildarstjóri Viðskipti innlent Hækkun á heilsugæslu auki verðbólgu í ágúst Viðskipti innlent Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent Plantan kveður Norræna húsið: „Dæmið er ekki alveg að ganga upp“ Viðskipti innlent Kristinn V. Jóhannsson er látinn Viðskipti innlent Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Viðskipti erlent Fleiri fréttir Olíuverð hækkar um rúm fimm prósent í kjölfar ummæla Trumps Skera niður Xbox til þess að spreða í gervigreind Sky ætlar að festa kaup á ITV Rukka ekki lengur foreldra fyrir að sitja við hlið barna sinna Olíuverð ekki verið lægra frá því árásirnar á Íran hófust Missir stöðu sína sem eini billjónamæringur heims Konungborinn Katari kaupir eina af bungabunga-höllum Berlusconi Vilja að Evrópa velji á milli loftslagsins og gervigreindarkapphlaupsins Olíuverð lækkar eftir fregnir af samkomulagi Samruni Paramount og Warner Bros samþykktur Heimsins fyrsti billjónamæringur Sögulegri skráningu SpaceX lokið Hefja rannsókn á Ryanair Fyrsta hækkun stýrivaxta í Evrópu síðan árið 2023 Rannsaka hvort Ryanair sé stætt á því að rukka foreldra fyrir að sitja með börnum sínum OpenAI setur einnig stefnuna á hlutafjárútboð Elkjøp fær milljónasekt fyrir persónuverndalagabrot Gervigreindariðnaðurinn: Eru með bensíngjöf en vantar bremsu Hefur hagnast um 7,4 milljónir á mínútu í 31 ár Anthropic nær forskoti í kapphlaupinu gegn OpenAI Ný flaga færir gervigreindina af skýinu Sjá meira
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent
Nýr kokteilbar opnaður á Hverfisgötu: „Okkur langaði bara að opna dyrnar sem fyrst“ Viðskipti innlent