Finnur Tómas fyrsti KR-ingurinn í 32 ár sem er valinn sá efnilegasti Ingvi Þór Sæmundsson skrifar 30. september 2019 11:30 Efnilegasti leikmaður Pepsi Max-deildar karla 2019, Finnur Tómas Pálmason. vísir/bára
Finnur Tómas Pálmason, leikmaður Íslandsmeistara KR, var útnefndur efnilegasti leikmaður Pepsi Max-deildar karla á lokahófi Pepsi Max-deildanna í Gamla bíói í gær. Finnur Tómas er fyrsti KR-ingurinn í 32 ár sem er valinn efnilegasti leikmaður efstu deildar á Íslandi. Síðasti KR-ingurinn til að fá þessa viðurkenningu var Rúnar Kristinsson, núverandi þjálfari KR, árið 1987. Rúnar og Finnur Tómas eru einu KR-ingarnir sem hafa verið valdir þeir efnilegustu í efstu deild síðan byrjað var að veita þessi verðlaun fyrir 35 árum. Breiðablik hefur átt flesta verðlaunahafa í þessum flokki (6). Finnur Tómas, sem er 18 ára, var fastamaður í miðri vörn KR í sumar. Hann lék 17 af 22 leikjum liðsins í Pepsi Max-deildinni og skoraði eitt mark. KR vann 15 af leikjunum 17 sem Finnur Tómas spilaði, gerði eitt jafntefli og tapaði aðeins einum. Finnur Tómas var í liði ársins í Pepsi Max-deild karla ásamt sex öðrum KR-ingum. Þá kom besti leikmaður deildarinnar einnig úr röðum KR; Óskar Örn Hauksson. Þá var Rúnar valinn besti þjálfarinn.Rúnar var valinn efnilegasti leikmaður efstu deildar 1987. Hann var þá 18 ára, líkt og Finnur Tómas er núna.vísir/bára
Pepsi Max-deild karla Reykjavík Tengdar fréttir Elín Metta og Óskar Örn best | Finnur og Hlín efnilegust Lokahóf Pepsi Max-deildanna fór fram í Gamla Bíói í kvöld. 29. september 2019 20:56 Mest lesið Spænski knattspyrnumaðurinn er látinn Fótbolti Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Íslenski boltinn Lét lífið í New York maraþoninu: „Þetta er óskiljanlegt“ Sport Handtóku fjórtán ára strák eftir uppátæki hans á fótboltaleik Sport „Eyðilagður“ yfir sögulegum titli ítalska ungstirnisins Formúla 1 Óhugnanlegt atvik á Tenerife: Líðan mannsins alvarleg en stöðug Fótbolti Bellingham fáklæddur í nýrri auglýsingaherferð Calvin Klein Fótbolti LeBron James fékk sér sopa af vínglasi áhorfanda í miðjum leik Körfubolti Finnar neita að spila við Rússland á HM Sport Alvarlegar fréttir af Jesus de Miguel Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar syrgja stuðningsmann sem lést langt fyrir aldur fram Fer frá Stjörnunni í FH Gummi Ben væri svo til í að spila með KR í dag Halldór tekinn til starfa með nýja teyminu Hansen með freistandi tilboð frá Akureyri Marc McAusland tekur við Njarðvík Pálmi Rafn tekur hanskana af hillunni og semur við Njarðvík Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Njarðvík sagði upp samningi við Smit Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Gylfi tekur við Víkingi Emil skrifar undir hjá Fram Grótta í sambandi við Davíð Smára „Magnús er þjálfari Aftureldingar og verður það áfram“ Emil Atlason á leið í Fram Israel frá Fram „Á stuttum tíma eru mínir nánustu vinir farnir“ Víkingar láta Einar Guðna fara Hallgrímur kveður KA Heimir ráðinn til ÍA og kostaði nokkrar milljónir Var klár í samkeppnina við Ingvar Flauta Péturs á hilluna Engin uppalin spilaði með Fram „Ég hef sjaldan, ef nokkurn tímann, kynnst öðru eins félagi og Víkingi“ Heimir farinn frá Fylki Einn dyggasti sonur ÍBV semur við Val „Á meðan liðið er að vinna skiptir ekki máli hvort að ég skori eða einhver annar“ Ásgeir Páll kveður Keflavík og Ísland Arnar spenntur og „no komment“ frá Magnúsi „Neyði menn ekki til að vera hérna“ Sjá meira
Elín Metta og Óskar Örn best | Finnur og Hlín efnilegust Lokahóf Pepsi Max-deildanna fór fram í Gamla Bíói í kvöld. 29. september 2019 20:56