Myrti fyrrverandi kærustu sína og fjölskyldu hennar Sylvía Hall skrifar 6. október 2019 10:41 Maðurinn gaf sig sjálfur fram við lögreglu. Vísir/Getty
Fimm eru látnir eftir að 25 ára gamall maður myrti fyrrverandi kærustu sína, fjölskyldu hennar og kærasta í bænum Kitzbühel í Austurríki í dag. Morðið var framið á heimili fjölskyldunnar. Kitzbühel er vinsæll áfangastaður fyrir vetraríþróttafólk og er íbúafjöldi á níunda þúsund. Norski fjölmiðillinn VG hefur eftir staðarmiðlum að árásin hafi átt sér stað aðfaranótt sunnudags en maðurinn er nú í haldi lögreglu. Maðurinn er sagður hafa keyrt að húsi fjölskyldunnar milli klukkan fjögur og fimm í nótt að staðartíma. Faðir stúlkunnar kom til dyra ásamt henni sjálfri þar sem þau áttu í deilum við manninn. Fjölskyldufaðirinn hafi því næst beðið hann um að yfirgefa svæðið sem hann gerði. Eftir að hafa yfirgefið heimili fjölskyldunnar fór hann heim og sótti skotvopn bróður síns. Þegar árásarmaðurinn sneri aftur myrti hann foreldra stúlkunnar og 25 ára gamlan bróður hennar. Í framhaldinu braut hann sér leið inn í íbúð í húsinu þar sem stúlkan, sem er nítján ára gömul, var ásamt kærasta sínum og skaut þau til bana. Á blaðamannafundi lögreglu sagði Walter Pupp, lögreglustjóri á svæðinu, að árásarmaðurinn hafi sjálfur gefið sig fram við lögreglu. Hann hafi lagt hníf á borðið og tilkynnt þeim að hann hafði myrt fimm manneskjur. Að sögn lögreglu var það ósætti milli mannsins og fyrrverandi kærustu hans sem leiddi til árásarinnar.
Austurríki Mest lesið Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin Erlent Segir Viðreisn í krísu og útilokar ekki að hætta stuðningi Innlent Hafi ekki fundað formlega án Harðar heldur snætt hádegismat Innlent Handtekinn fyrir ólöglega dvöl í landinu Innlent „Noregur sökkar“ Erlent „Vonandi verða þau ekki börnin sem hía á ráðherrann“ Innlent Tóku á móti barni í sjúkrabíl Innlent Fundu auðgað úran í dánarbúi Erlent „Jón Gnarr er ein mesta prímadonna Íslandssögunnar“ Innlent Umferð gæti tafist á Arnarnesvegi Innlent Fleiri fréttir Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Arnarhreiður Hitlers sviðin rúst Þúsund handteknir og táragasið hvergi sparað Yfir hundrað handteknir í mótmælunum Geta notað drónana til fulls á ný Hafi fengið bréf um ásakanirnar en deildu því ekki með fleirum Minkarækt Dana mun heyra sögunni til Kim fór til Kína Neglt fyrir glugga og lestarstöðvum lokað Ekki enn náðst að slökkva í Arnarhreiðri Hitlers Vopnakapphlaup á Kóreuskaga „Rasísk hryðjuverkaárás“ að mati Macron Arnarhreiður Hitlers stendur í ljósum logum Gríðarlegur viðbúnaður í Frakklandi vegna morgundagsins Segist hafa tryggt staðbundið vopnahlé Sjá meira