Víðáttumikil lægð færir okkur austanstorm Kristín Ólafsdóttir skrifar 15. október 2019 07:44 Gular viðvaranir eru í gildi á Suður- og Suðausturlandi frá hádegi og til miðnættis. Skjáskot/veðurstofa íslands
Víðáttumikil lægð er nú stödd langt suður í hafi og „færir okkur austanstorm með suðurströndinni, einkum undir Eyjafjöllum og í Öræfum,“ að því er segir í hugleiðingum veðurfræðings á vef Veðurstofu Íslands. Vindurinn nær sér á strik í kringum hádegi en gular viðvaranir á Suður- og Suðausturlandi verða í gildi frá því um hádegisbil og til miðnættis. „Annars staðar á landinu er útlit fyrir stífa austanátt þó að náist líklega ekki í stormstyrk nema á hálendinu. Með þessum stífa vindi er rigning um landið S- og A-vert og jafnvel talsverð um tíma SA-lands í kvöld,“ segir í hugleiðingum veðurfræðings. Á morgun dregur svo úr vindi víðast hvar. Líklega verður þó áfram stormur í Öræfum fram eftir degi og einhver væta um landið austanvert.Veðurhorfur á landinu næstu dagaÁ miðvikudag:Austan 8-13 m/s, en 13-20 SA-lands. Þurrt að kalla á landinu, en rigning með köflum A-ast. Hiti 4 til 11 stig, mildast SV-til.Á fimmtudag:Norðaustan 8-15 m/s. Rigning SA- og A-lands, skýjað en úrkomulítið norðantil, en léttskýjað um landið V-vert. Hiti 2 til 8 stig, mildast syðst.Á föstudag:Hægt minnkandi norðaustanátt. Skýjað og úrkomulítið fyrir austan, en bjart með köflum V-lands. Hiti 1 til 6 stig yfir daginn, en víða líkur á næturfrosti.Á laugardag:Fremur hæg breytileg átt og skýjað með A-ströndinni, annars bjart á köflum. Kólnar heldur.Á sunnudag:Suðvestlæg átt og fer að rigna V-lands. Hiti 0 til 7 stig.Á mánudag:Útlit fyrir breytilega átt og úrkomusamt veður um allt land. Hlýnar allra syðst.
Veður Mest lesið Biður Jón afsökunar Innlent Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Innlent Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Innlent „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Innlent Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Erlent Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Erlent Vara við „perragleraugum“ Innlent Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Innlent Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Innlent Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Erlent Fleiri fréttir Gaus úr úðarakerfi í Mjóddinni Þorgerður Katrín í ítarlegu viðtali Móðir ósátt við að bara aprílbörn fái ekki RS-bóluefni Einn handtekinn vegna líkamsárásar í miðbænum Popúlismi og einangrunarhyggja ógnar loftslagsaðgerðum Biður Jón afsökunar „Vitum ekki hvaða skrímsli er verið að skapa“ Komi til greina að nýta gervigreind í námsgagnagerð Ari nýr formaður Ungra vinstri grænna Farið að hvessa: „Veðrið er ekkert svo slæmt en ekkert sérstakt heldur“ Lést eftir alvarlegt slys á Gæsavatnaleið Engin yfirsýn hvort það séu Tik Tok-myndbönd eða klám sem eigi að geyma Leggi línuna að samþykki veiti rétt til að stórskaða fólk Vara við „perragleraugum“ Þyrlan kölluð út vegna slyss á hálendinu Kannast ekki við lýsingar Jóns Bakar til góðs næsta sólarhringinn Þakplötur að losna af íþróttahúsi í Grundarfirði Skoða viðbrögð við rannsókn á Ölgerðinni Minna á útgáfu nafnskírteina vegna rannsóknar lögreglu Eldur í lyftara í álverinu í Straumvík Tveir reyndu að flýja lögreglu á fótum eftir eftirför „Fylgjumst grannt með framvindu mála“ Dæmi um að búnar séu til „gervikennitölur“ fyrir börn Handtekinn fyrir að ausa fúkyrðum yfir hóp fólks Aðgengið gott en gefur ekki upp synjanirnar „Eigum ekki að bíða eftir alvarlegu atviki“ Jafnlaunavottunin afnumin en starfsfólkinu fækkar ekki Halla kjörin fyrsti varaforseti ASÍ Varar við að biðraðir í Keflavík geti fækkað flugleiðum Sjá meira