Önnur starfmannaleiga Ingimars í þrot Stefán Ó. Jónsson skrifar 6. nóvember 2019 11:15 Skrifstofur Manngildis voru við Auðbrekku í Kópavogi. Vísir/Vilhelm
Starfsmannaleigan Manngildi ehf. hefur verið tekin til gjaldþrotaskipta. Fyrirtækið var fyrirferðamikið í fjölmiðlum í lok síðasta árs vegna rannsóknar á útgáfu falsaðra skilríkja fyrir níu erlenda starfsmenn Manngildis. Eigandi starfsmannaleigunnar, Ingimar Skúli Sævarsson, var handtekinn, látinn laus að lokinni yfirheyrslu og ítrekaði sakleysi sitt í yfirlýsingum til fjölmiðla. Greint er frá því í Lögbirtingablaðinu að Manngildi hafi verið úrskurðað gjaldþrota þann 30. október síðastliðinn. Samkvæmt ársreikingi félagsins fyrir árið 2017 var eini hluthafi í félaginu fyrrnefndur Ingimar. Hann hafði áður rekið starfsmannaleigu, Verkleiguna ehf., sem jafnframt varð gjaldþrota. Verkleigan var engu minna umdeild en Manngildi. Þannig sætti Ingimar rannsókn vegna gruns um að hafa vantalið skattskylda veltu Verkleigunnar, sem Stundin segir hafa numið 237 milljónum króna, og meints 57 milljóna skattaundanskots á síðari hluta árs 2017. Fyrirtækið fór síðan í þrot í október 2018 eftir að skattrannsóknarstjóri hafði kyrrsett eignir félagsins. Málefni starfsmannaleigunnar Manngildis voru sem áður segir einnig á borði lögreglunnar um tíma. Lögreglu grunaði að fölsuð vegabréf hafi verið notuð til að útvega níu erlendum starfsmönnum Manngildis kennitölu hjá Þjóðskrá. Réðst hún því til atlögu á skrifstofur fyrirtækisins í Kópavogi og leiddi tíu manns út í járnum, þeirra á meðal var eigandinn Ingimar. Honum þótti lögreglan hafi farið offari og misbeitt valdi sínu í aðgerðum sínum. Lögfræðingur starfsmannaleigunnar, Tryggvi Agnarsson, sagði í samtali við fréttastofu að starfsemin og Ingimar hafi verið dregna inn í málið að óþörfu. Ingimar var laus ferða sinna eftir skýrslutöku. Tryggvi Agnarsson var lögmaður Manngildis.Vísir/JKJ Deilum um Manngildi var þó ekki lokið þar. Lögmaðurinn Tryggvi var sakaður af forsvarsmönnum nafntoguðu starfsmannaleigunnar Manna í vinnu um að hafa „brotið alvarlega og ítrekað gegn ákvæðum siðareglna lögmanna,“ með ummælum sínum í viðtali við Vísi í fyrra, meðan vegabréfarannsóknin stóð sem hæst. Þar sagði Tryggvi, og átti þar við Ingimar skjólstæðing sinn: „Hann kom ekki inn í verkleiguna sem var hreinsuð að innan af glæpalýðnum fyrr en í október í fyrra,“ sagði Tryggvi. Vísaði hann til harðvítugra deilna milli Ingimars Skúla og Höllu Rutar Bjarnadóttur sem hófu samstarf hjá Verkleigunni árið 2016. Eftir gjaldþrot Verkleigunnar stofnaði Ingimar Skúli Manngildi en Halla Rut Menn í vinnu ásamt fleiri fyrrverandi starfsmönnum hjá Verkleigunni. „Það eru allar líkur að þessi kona og samstarfsmenn hennar hafi staðið að þessu.“ Halla Rut og öðrum aðstandendum Manna í vinnu fannst Tryggvi með ummælum sínum hafa framið refsiverðan verknað og kærðu hann til úrskuðrðarnefndar lögmanna. Nefndin komst þó að þeirri niðurstöðu að ekki hafi verið sýnt fram á að Tryggvi hafi gert Mönnum í vinnu neitt sem stríði gegn lögum eða siðareglum lögmanna. Kröfum Manna í vinnu var því hafnað - rúmu hálfu ári áður en starfsmannaleigan lagði upp laupana.
Gjaldþrot Lögreglumál Vinnumarkaður Tengdar fréttir Framkvæmdastjóri Manngildis furðar sig á rannsókn lögreglu Ítrekar sakleysi sitt. 10. október 2018 16:32 Segir lögreglu hafa verið upplýsta um að mennirnir væru ekki með fullgild skilríki þegar þeim var hleypt inn í landið Mennirnir sem voru handteknir í gær ekki allir strfsmenn starfsmannaleigunnar 10. október 2018 18:45 Lögmaður starfsmannaleigunnar Manngildis sver fyrir aðkomu eigandans að vegabréfafölsun Eigandi Manngildis, Ingimar Skúli Sævarsson, er meðal þeirra níu sem handtekinn var í morgun í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn á útgáfu á fölsuðum skilríkjum. 9. október 2018 14:20 Mest lesið Þúsundir hringja í Skattinn Viðskipti innlent „Það er bara ólöglegt“ Viðskipti innlent Íris ráðin til SI Viðskipti innlent Eigum við að vera kurteis í samskiptum við gervigreindina? Atvinnulíf Besti dagur Wall Street frá því stríðið hófst Viðskipti erlent Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Viðskipti innlent Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Viðskipti innlent „Heimsmarkaðsverð eitt og sér stýrir ekki verði úti í búð” Neytendur Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Viðskipti innlent Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Viðskipti innlent Fleiri fréttir Íris ráðin til SI Þúsundir hringja í Skattinn „Það er bara ólöglegt“ Fjöldi apóteka sameinast undir vörumerki Apótekarans Fara fram á lögbann á Isavia Engar forsendur fyrir því að hækkanir skili sér að fullu út í bensínverð Framtalsfrestur að renna út: „Það gengur alveg rosalega vel“ Sekta Sýn fyrir að sýna efni ekki við hæfi barna fyrir vatnaskil Bjartur og Vésteinn Örn til SFF Leggja til verðþak vegna olíufélaga sem þyki varla treystandi Snarpri en verðmætri loðnuvertíð að ljúka Jón Ásgeir fær ekki meira frá ríkinu Magnús hættir hjá Orkusölunni Eiga í viðræðum um sjónvarpsinnviðafélag Hulda tekur við nýrri deild hjá Eimskip „Dómstólar staðfesta að ostur er ostur“ Stefna á að banna gervigreindarklám í Evrópu Spá líka vaxtahækkun en enn meiri verðbólgu Verslun Kappahl í Smáralind og netverslun opnaðar á laugardag Síminn og Sýn semja um kaup á Vísi og útvarpsstöðvum Telja bensínlítrann tuttugu krónum of dýran „Vonandi verður ein vaxtahækkun nóg“ Opna menningarmiðstöð í Smáralind Spá 0,25 prósenta hækkun stýrivaxta Borgar sig að taka út séreignasparnaðinn og ávaxta sjálfur? Þúfan veltir þungu flatbökuhlassi Óskar Ingi fjármálastjóri Beru „Blasir við öllum“ að athugasemdir SA skili ekki árangri Húrra dregur saman seglin Innleiða gervigreindina í MS Sjá meira
Framkvæmdastjóri Manngildis furðar sig á rannsókn lögreglu Ítrekar sakleysi sitt. 10. október 2018 16:32
Segir lögreglu hafa verið upplýsta um að mennirnir væru ekki með fullgild skilríki þegar þeim var hleypt inn í landið Mennirnir sem voru handteknir í gær ekki allir strfsmenn starfsmannaleigunnar 10. október 2018 18:45
Lögmaður starfsmannaleigunnar Manngildis sver fyrir aðkomu eigandans að vegabréfafölsun Eigandi Manngildis, Ingimar Skúli Sævarsson, er meðal þeirra níu sem handtekinn var í morgun í umfangsmiklum aðgerðum lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu við rannsókn á útgáfu á fölsuðum skilríkjum. 9. október 2018 14:20